Bílar

Chris Harris fer nýju Top Gear þrautabraut fræga fólksins

Finnur Thorlacius skrifar
Þeir sem horft hafa á eldri Top Gear þætti þekkja brautina sem frægir einstaklingar eru látnir aka á tíma vel. Henni hefur nú verið breytt og komnir malarkaflar á tveimur stöðum á henni og stökkbretti að auki sem skelfa mun margan ökumanninn, auk vatnspitts.

Hinn reyndi ökumaður Chris Harris fór þessa braut á dögunum og hér sést hvernig er að aka hana og satt að segja varð Harris ekki um sel við prófun hennar. Síðast var ekið á Opel Astra bíl og nýi bíllinn er Mini útbúinn fyrir rallycross akstur og ekki veitir af á mölinni og á ennfremur stökkbrettinu skelfilega.

Á brautinni er víða hægt að beita bílnum af færni og fara brautina á hlið ef ökumenn ráða við slíkt. Forvitnilegt verður að sjá fræga fólkið glíma við þessa talsvert erfiðu braut en síðast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×