Innlent

Ný könnun MMR: Fylgi Guðna minnkar um 9 prósentustig

Birgir Olgeirsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. Vísir/Hanna
Guðni Th. Jóhannesson lækkar um tíu prósentustig á milli kannanna MMR. Í könnun sem framkvæmda var af fyrirtækinu dagana 26. maí til 1. júní 2016 mælist Guðni með 56,6 prósenta fylgi.

Í könnuninni á undan mældist hann með 65,6 prósenta fylgi. Davíð Oddsson mældist með 20,1 prósenta fylgi í nýju könnuninni og Andri Snær Magnason með 10,9 prósenta fylgi. Fylgi Höllu Tómasdóttur jókst um tæp fimm prósentustig frá síðustu könnun og mælist nú með 6,9 prósent samkvæmt MMR.

Þegar spurt var hvern svarendur myndu líklegast kjósa ef þeirra fyrsta val væri ekki í framboði kom í ljós að Guðni Th. Jóhannesson var oftast nefndur en Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir komu þar á eftir. Aðrir frambjóðendur voru sjaldnar nefndir sem annað val.

MMR



Fleiri fréttir

Sjá meira


×