Lífið

Ísland enn og aftur leikmynd í myndbandi Biebers

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bieber notar Ísland aftur.
Bieber notar Ísland aftur. vísir
Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber gaf í dag út nýtt myndband við lagið Company og má sjá Ísland bregða fyrir í myndinu.

Eins og flestum er kunnugt var Bieber hér á landi í september með ljósmyndaranum Chris Burkard.

Bieber fór víða, bæði um sveitirnar og á frétta- og samfélagsmiðlum. Síðar kom í ljós að afrakstur dvalarinnar á Íslandi var nýtt tónlistarmyndband við lagið I'll Show You af plötunni Purpose.

Myndbandið er hið glæsilegasta. Bieber sýnir melankólíska hlið á sér og nýtur íslensk náttúra sín til hins ítrasta. Í þessu nýjasta myndbandi fer Bieber víða um heim og má meðal annars sjá hann spóka sig um hér á landi ásamt nokkrum félögum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×