Erlent

Egypsk flugvél hvarf yfir Miðjarðarhafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Farþegaþota egypska flugfélagsins EgyptAir sem var á leið frá París til Kaíró í Egyptalandi í nótt hvar af ratsjám og er hún nú sögð hafa hrapað í Miðjarðarhafið. Í fyrstu bárust fregnir af því að neyðarkall hefði borist frá flugvélinni skömmu áður en hún hrapaði. Egypski herinn þvertekur hins vegar fyrir að slíkt kall hafi borist.

Fimmtíu sex farþegar eru um borð auk tíu áhafnarmeðlima. Egypski herinn leitar nú vélarinnar með hjálp Grikkja en flugvélin var komin stutt inn í egypska lofthelgi þegar hún hrapaði. Veður var mjög gott á svæðinu þegar vélin hrapaði.

Uppfært 10:30

Francois Hollande, forseti Frakklands, hefur staðfest að flugvélin brotlenti.

Vísir/GraphicNEws
Vélin, sem er af gerðinni Airbus A320 var í 37 þúsund feta hæð (11.277 metrar) þegar hún hvarf af ratsjám yfir austurhluta Miðjarðarhafsins en embættismaður segir í samtali við breska ríkisútvarpið að vélin hafi horfið rétt fyrir klukkan eitt í nótt.

Herinn varð var við neyðarsenda vélarinnar í nótt sem taldir eru hafa farið í gang við hrapið.

Flugfélagið segir að á meðal farþega hafi verið þrjátíu Egyptar, fimmtán Frakkar, einn Breti auk fólks frá Belgíu, Alsír, Súdan, Tsjad og Portúgal. Þrjú börn eru um borð.

Haft er eftir Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, á vef AP fréttaveitunnar, að ekki sé vitað hvers vegna flugvélin hrapaði og ekki megi útiloka neitt. Hann segir Frakka tilbúna til aðstoðar biðji yfirvöld Egyptalands um það.

Sherif Ismail, forsætisráðherra Egyptalands, segir of snemmt að segja til um hvort að um slys eða árás hafi verið að ræða. Yfirvöld í Frakklandi hafa ekki viljað tjá sig um möguleikann á því að um árás hafi verið að ræða.

AFP fréttaveitan hefur eftir heimildum að flugvélin hafi brotlent í hafinu í um 130 sjómílna fjarlægð frá grísku eyjunni Karpathos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×