Innlent

Einar K. hættir í haust

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingi og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að leita ekki endurkjörs í næstu alþingiskosningum. 25 ár eru liðin frá því að hann tók fyrst sæti á þingi. Þetta tilkynnti hann á Facebook nú fyrir skömmu.

Þar segir hann að ákvörðunina hafi hann tekið með fjölskyldu sinni eftir vandlega íhugun.

„Ég var fyrst kjörinn á þing í alþingiskosningunum sem fram fóru 20 apríl árið 1991 og um þessar mundir eru því liðin 25 ár frá því ég fyrst tók sæti sem aðalmaður á Alþingi. 25 ár eru drjúgur tími í starfsævi hvers manns. Tíu sinnum hef ég tekið átt í kosningabaráttu í sæti þingmanns eða varaþingmanns. Því tel ég tímabært að láta nótt sem nemur og gefa ekki kost á mér til endurkjörs,“ segir Einar sem leiddi lista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi í þingkosningunum 2013.

Í færslu sinni segir Einar að hann hafi fengið mikla hvatningu umað gefa kost á sér til endurkjörs. Það hafi þó ekki breytt niðurstöðu hans. Hann segist þó þakklátur fyrir þann hlýhug og það traust sem hefur búið að baki slíkum óskum.

Segir stöðu Sjálfstæðisflokksins sterka

Einar segir í færslu sinni ánægjulegt að finna að flokkur hans sé „enn á ný í sókn, þó sannarlega hafi gefið á bátinn upp á síðkastið,“ eins og hann orðar það.

„Sjálfstæðisflokkurinn er undir forystu góðs, trausts og öflugs fólks. Miklu hefur verið komið í verk á síðustu árum og grundvöllur lagður að góðri framtíð á Íslandi. Forsendur Sjálfstæðisflokksins til góðs árangurs á komandi mánuðum eru því sannarlega fyrir hendi,“ segir Einar.

„Nú er komið að tímamótum í lífi mínu. Beinni þátttöku minni í stjórnmálum lýkur senn. Við tekur nýtt tímabil sem ég veit ekki hvað muni bera í skauti sínu. Það leiðir tíminn einn ljós.“

Færslu Einars má sjá hér að neðan.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×