Súðavíkurhlíðin sé í reynd rússnesk rúlletta sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. mars 2016 14:55 "Súðavíkurhlíðin er í reynd rússnesk rúlletta með tilliti til öryggis vegfarenda, sem er óásættanlegt," segir í þingsályktunartillögunni. vísir/pétur markan
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að Álftafjarðargöng verði tekin inn í næstu samgönguáætlun og hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis. Vegurinn um Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði og Súðavíkurhlíð í Álftafirði sé stórhættulegur vegfarendum vegna tíðar ofanflóða, einkum snjóflóða. Farið er fram á að innanríkisráðherra verði falið að gera nauðsynlegar breytingar á samgönguáætluninni þannig að jarðgöng milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar í Ísafjarðardjúpi verði næsta jarðgangaframkvæmd á Vestfjörðum á eftir Dýrafjarðargöngum. Ráðherra hefji þegar undirbúning vegna jarðgangnagerðarinnar og tryggi jafnframt nægilegar fjárveitingar til fyrirhugaðra snjóflóðavarna.Sjá einnig:Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð á mánudagÓásættanlegt ástand Í greinargerð með tillögunni segir að árum saman hafi sú vitneskja legið fyrir að vegurinn um Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði og Súðavíkurhlíð í Álftafirði sé stórhættulegur vegfarendum vegna tíðra ofanflóða, einkum snjóflóða. Það hafi komið átakanlega glöggt í ljós í ofviðri sem gekk yfir Vestfirði áramótin 2012 þegar fjölmörg snjóflóð féllu á þessari leið á fáeinum dögum. „Tepptust þar með allar bjargir og aðföng til og frá Ísafirði, höfuðstað Vestfjarða. Þær aðstæður sem þar með mynduðust eru með öllu óásættanlegar fyrir íbúa á norðanverðum Vestfjörðum sem sækja heilbrigðisþjónustu og aðra grunnþjónustu til Ísafjarðar,“ segir í ályktuninni. Þá segir jafnframt að Súðavíkurhlíðin sé í reynd rússnesk rúlletta með tilliti til öryggis vegfarenda, sem sé óásættanlegt.
Tengdar fréttir Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð: „Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður“ Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segja löngu kominn tími á Álftafjarðargöng í stað eins hættulegasta vegar landsins. 15. mars 2016 15:51 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira
Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð: „Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður“ Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segja löngu kominn tími á Álftafjarðargöng í stað eins hættulegasta vegar landsins. 15. mars 2016 15:51