Innlent

Læknir skorar á borgina að láta af „tilraun á börnunum“ í dekkjakurlinu

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Grunsemdir eru um að dekkjakurl sem notað er sem uppfyllingarefni á gervisgrasvöllum geti valdið eitlakrabbameini og hvítblæði. Há tíðni eitlakrabbameins hjá börnum sem hafa spilað í marki í fótbolta hefur vakið athygli. Kurlið er notað á 21 spark- og gervigrasvöll í Reykjavík.

Við sögðum ykkur í gær frá Fjólu Sigurðardóttur 21 árs knattspyrnukona í Fram sem telur að bein orsakatengsl séu á milli öndunarfærasjúkdóms sem hún glímir við og þeirrar staðreyndar að hún hefur undanfarin 5 ár spilað á gervigrasvelli í Safamýri sem þakinn er með dekkjakurli. En dekkjakurlið veldur ekki bara ertingu í öndunarveginum. Í hverju kílói af dekkjakurlinu sem notað er á spark- og gervisgrasvöllum í Reykjavík eru 13-55 milligrömm af þrávirka efninu PAH, sem getur valdið krabbameini. Leyfilegt hámark í leikföngum, svo dæmi sé tekið, er 0,5 milligrömm.

Iðkendur njóti vafans

Þórarinn Guðnason lyflæknir og sérfræðingur í hjartasjúkdómum segir að lykilatriðið í þessari umræðu sé að skaðleysi dekkjakurlsins hafi ekki verið sannað. Iðkendur verði að njóta vafans.

„Í Bandaríkjunum er grunur um aukna tíðni eitlakrabbameins og hvítblæðis hjá iðkendum. Þetta er ekki sannað en það hefur vakið athygli að óvenjumargir krakkar, sérstaklega þeir sem hafa spilað í marki, hafa greinst með eitlakrabbamein þar. Þetta þarf að skoða betur og ég veit að Bandaríkjamenn ætla að gera það. Hins vegar er vandamálið við sönnunarbyrðina í þessu að það tekur langan tíma að sanna með óyggjandi vísindalegum hætti að það séu orsakatengsl á milli efna í umhverfinu og sjúkdóma. Góð dæmi um þetta eru asbest og reykingar sem tók mörg ár að sanna að yllu krabbameini en enginn efast um í dag,“ segir Þórarinn.

Meirihluti borgarstjórnar hefur ekki sýnt málinu mikinn áhuga. Hinn 1. desember var tillaga um sérstaka fjárveitingu til endurbóta á gervisgrasvöllum felld í borgarráði með atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata. 11. febrúar sl. samþykkti borgarráð loks endurnýjun gervisgrasvallar Víkings og jafnframt er gert ráð fyrir að vellir KR og Fylkis verði endurnýjaðir á næsta ári. Þetta eru 3 vellir af 21.

„Ég hvet Reykjavíkurborg að taka strax á þessum málum og reyna að fá fjármagn í þetta. Það er engin ástæða til þess að halda áfram að gera þessa tilraun á börnunum okkar,“ segir Þórarinn Guðnason. 


Tengdar fréttir

Ung knatt­spyrnu­kona rekur öndunar­færa­sjúk­dóm til dekkjakurls

Ung knattspyrnukona í Fram telur að bein tengsl séu á milli öndunarfærasjúkdóms sem hún glímir við og þeirri staðreynd að hún hefur spilað undanfarin 5 ár á velli sem þakinn er heilsuspillandi dekkjakurli. Hér áður fyrr var hún alltaf með sterk og heilbrigð lungu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×