Stefni á að komast í úrslit Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2016 06:00 Freyr Alexandersson, til hægri, á blaðamannafundinum í gær. Vísir/Stefán „
Það var erfitt að velja hópinn. Ég get ekki sagt annað,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, en hann tilkynnti í gær 23 manna hóp sem tekur þátt á Algarve-mótinu í byrjun næsta mánaðar. Íslenska liðið er í riðli með Danmörku, Kanada og Belgíu. Leikir liðsins verða 2., 4. og 7. mars. Svo er leikur um sæti þann 9. mars. Mikið spilað á stuttum tíma. „Það er bara einn hvíldardagur á milli fyrsta og annars leiks þannig að ég geri ráð fyrir því að það verði 8-9 breytingar á liðinu þá. Við munum því rúlla vel á hópnum í þessu móti. Það styttist í alvöru leiki hjá okkur og við þurfum að fá síðustu svör með ákveðna leikmenn,“ segir Freyr og bætir við: „Við höfum verið að fá bæði jákvæð og neikvæð svör frá nokkrum leikmönnum sem eru ekki með okkur núna. Við vitum hvað við höfum þar. Þetta mót er því síðasta próf fyrir nokkra leikmenn.“Sjá einnig: Algarve-hópurinn tilbúinn Rakel Hönnudóttir er meidd og Guðmunda Brynja Óladóttir er ekki valin. „Hún er að banka á dyrnar sem og Ásgerður Stefanía. Ég veit hvað ég fæ frá þessum stelpum og ákvað að prófa aðra leikmenn núna.“ Þetta mót hefur alla tíð verið gríðarlega sterkt en er ekki eins sterkt núna og áður. Bandaríkin, Þýskaland og Frakkland taka þátt í öðru móti að þessu sinni en mótið er eftir sem áður sterkt. „Við fengum góðan riðil og svo snýst þetta um hversu vel gengur hjá okkur. Ég er mjög ánægður með mótið. Það sem ég er að vonast eftir að fá út úr þessu móti er svör í ákveðnum leikstöðum þar sem er lítil breidd. Til að mynda í bakvarðarstöðunum. Svo vil ég sjá hvernig ákveðnir leikmenn eru í hóp í svona aðstæðum í tíu daga. Bæði andlega og félagslega,“ segir Freyr en hann er óhræddur við að segja að hann ætli sér stóra hluti á mótinu. „Mig langar að fara með liðið í úrslitaleikinn. Við höfum ekki verið að setja okkur svona markmið áður. Ég vænti þess að Brasilía vinni hinn riðilinn og það væri mjög gaman að mæta þeim í úrslitum. Þetta er undir okkur komið og við getum alveg reynt að vinna þetta. Ég vil búa til meiri metnað og að við þorum að segja að við ætlum að vinna þetta mót. Sama þó þetta sé æfingamót. Það gerist ekkert ef við vinnum ekki. Ég vil að við þorum og ætlum okkur að gera eitthvað.“
Fótbolti Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Fleiri fréttir Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Sjá meira