Óviðunandi bið eftir geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. febrúar 2016 11:51 Meðalbiðtími eftir þjónustu hjá BUGL er um níu mánuðir. Vísir/Þök
Börn og unglingar geta þurft að bíða í allt að eitt og hálft ár eftir nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Ríkisendurskoðun telur þetta óviðunandi. Auk þess að ganga gegn lögbundnum skyldum ríkisins stefnir þessi langa bið bæði langtímahagsmunum þess og velferð einstaklinga í tvísýnu. Stofnunin hvetur stjórnvöld til að skilgreina hlutlæg viðmið um biðtíma eftir þjónustunni.Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Ýmsir aðilar á mismunandi stjórnsýslustigum sinna þessari þjónustu en kerfið skiptist í þrjú þjónustustig: grunn-, ítar- og sérþjónustu. Grunnþjónustan sinnir m.a. forvarnarstarfi, fræðslu og tilfellum sem kalla ekki á róttæk inngrip. Hluti barna þarf á ítarþjónustu að halda og í alvarlegustu tilfellunum verður að leita eftir sérþjónustu. Ætla má að á tímabilinu 2010‒14 hafi ríkissjóður að meðaltali varið allt að 2,7 ma.kr. á ári til geðheilbrigðismála barna og unglinga fyrir utan kostnað grunnþjónustunnar. Jafnframt bendir Ríkisendurskoðun á að raunveruleg þörf barna og unglinga hér á landi fyrir ítar- og sérþjónustu hefur ekki verið metin. Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneyti til að meta þessa þörf og ákveða hvernig henni verði best mætt með skipulögðum hætti.718 á biðlista síðla árs í fyrra Fram kemur í skýrslunni að eftirspurn eftir þjónustu stofnana sem sinna geðheilbrigðismálum barna og unglinga hefur stóraukist undanfarin ár. Samhliða hefur biðtími eftir þjónustunni lengst. Síðla árs 2015 biðu rúmlega 390 börn eftir þjónustu Þroska- og hegðunarstöðvar sem starfar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en þjónar öllu landinu, 120 voru á biðlista göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) og 208 biðu eftir þjónustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Biðtíminn getur orðið allt að eitt og hálft ár. Að mati Ríkisendurskoðunar er sá langi biðtími sem einkennt hefur geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga óviðunandi. Auk þess að ganga gegn lögbundnum skyldum ríkisins stefnir þessi bið bæði langtímahagsmunum þess og velferð einstaklinga í tvísýnu. Ef ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram. Stofnunin hvetur velferðarráðuneytið til að skilgreina og innleiða hlutlæg viðmið um biðtíma barna og unglinga sem þarfnast þjónustu vegna geðheilsuvandamála. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í þjónustu við börn og unglinga sem glíma við geðheilsuvanda. Skýr verkefna- og ábyrgðarskipting milli stjórnsýslustiga er forsenda þess að tekið sé á geðheilsuvanda barna og unglinga á árangursríkan hátt. Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneyti til að vinna náið með sveitarfélögunum og öðrum stjórnvöldum að því að tryggja að sveitarfélögin geti sinnt verkefnum sem lúta að geðheilsu barna og unglinga.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira