Innlent

Um 300 lands­manna eiga af­mæli fjórða hvert ár

Birta Björnsdóttir skrifar
Ein afmælisbarna dagsins er Rakel Júlía Jónsdóttir, birtingastjóri hjá Símanum, en hún segist sjálf kippa sér lítið upp við þennan sjaldséða afmælisdag.
Ein afmælisbarna dagsins er Rakel Júlía Jónsdóttir, birtingastjóri hjá Símanum, en hún segist sjálf kippa sér lítið upp við þennan sjaldséða afmælisdag.

Það þykir flestum í kringum mig þetta merkilegri afmælisdagur en mér sjálfri, segir eitt afmælisbarna dagsins, en hún er meðal þeirra um þrjú hundruð landsmanna sem eiga einungis afmæli fjórða hvert ár.



Um 0,1% landsmanna á afmæli í dag, en það sem skilur þessa tæplega 300 landsmenn frá okkur hinum er að þau áttu síðast afmæli árið 2012, þegar síðast var hlaupár.



Ástæða hlaupársdagsins er sú að árstíðaárið er aðeins lengra en almanaksárið og telur nákvæmlega 365 daga, 5 stundir, 48 mínútur og 46 sekúndur. Þessum tæplega 24 tímum er safnað saman fjórða hvert ár, þann 29. febrúar.



Ein afmælisbarna dagsins er Rakel Júlía Jónsdóttir, birtingastjóri hjá Símanum, en hún segist sjálf kippa sér lítið upp við þennan sjaldséða afmælisdag.



„Kannski ekki ég, en vinkonur mínar og fjölskyldan öll gerir mikið úr deginum og finnst mjög merkilegt að ég eigi afmæli þennan dag," segir Rakel, sem er þá 11 ára í dag og búin að vera 10 ára í fjögur ár að eigin sögn.



Rakel segist nær eingöngu eiga góðar tengdar því að eiga strangt til tekið afmæli á fjögurra ára fresti.



„Ég man eftir einu skipti þegar ég var þriggja ára, eða 12 ára, þá var einhver í bekknum sem sagði að ég ætti ekki skilið afmæliskveðju eitthvert árið þann 28. febrúar. Mamma sagði mér þá að hún hefði gengið fram yfir með mig og ég því valið mér þennan afmælisdag sjálf. Eftir það var ég mjög sátt við daginn."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×