Innlent

Viðurkenningin mikilvæg fyrir sjómannastéttina alla

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sjómannafélagið Jötunn hugðist greiða allan málskostnað. Ísfélaginu var þó gert að greiða hann, alls 2,8 milljónir.
Sjómannafélagið Jötunn hugðist greiða allan málskostnað. Ísfélaginu var þó gert að greiða hann, alls 2,8 milljónir. vísir/stefán
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segist fagna dómi Héraðsdóms Suðurlands sem nýverið komst að þeirri niðurstöðu að Ísfélag Vestmannaeyja væri bótaskylt vegna slyss skipverja um borð í skipi sem félagið gerir út. Félagið hafði hafnað bótaskyldu sinni á þeim grundvelli að utanaðkomandi atburður hefði ekki orsakað slysið.

Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2009 þegar Valmundur var formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum. Félagið taldi afar mikilvægt að réttur skipverjans yrði viðurkenndur og ákvað því að skuldbinda sig til þess að greiða málskostnað ef málið tapaðist.

Sjá einnig:Útgerðarfélag bótaskylt vegna slyss

„Við sáum hvað það var mikilvægt að fá úr þessu skorið því þetta snerist um það hvort veltingur á skipi í brjáluðu veðri sé utanaðkomandi atburður eða atburður sem menn verða að búa við. Ef menn slasast illa til dæmis ef það kemur brot á skipið, að það sé ekki bótaskylt slys. Þar sem ekki náðist sátt um þetta þá taldi stjórn félagsins mikilvægt að fá úr þessu skorið fyrir dómi, þannig að við bökkuðum manninn upp í þessum málaferlum,“ segir Valmundur.

Ísfélagið beið sem fyrr segir lægri hlut í málinu og hyggst ekki áfrýja því. Það var jafnframt dæmt til að greiða allan málskostnað, alls 2,8 milljónir. Valmundur segir félagið vel hafa verið tilbúið til að taka á sig þann kostnað, hefði skipverjinn tapað málinu, enda afar mikilvægt fyrir sjómannastéttina alla að fá úr málum sem þessum skorið.

„Við vorum ekki tilbúin í það á sínum tíma að sætta okkur við það að ef það kæmi brot á skip og menn myndu slasast að menn lægju bara óbættir. Nú hefur þetta verið viðurkennt, sem er mjög mikilvægt,“ segir Valmundur. „Við auðvitað fögnum þessari niðurstöðu mjög og erum ánægð með þennan dóm. Þeir áfrýja ekki sem er viðurkenning á dómnum að okkar mati.“


Tengdar fréttir

Útgerðarfélag bótaskylt vegna slyss

Ísfélag Vestmannaeyja fór fram á að skipverjinn beindi kröfum sínum til Tryggingamiðstöðvarinnar og vísaði meðal annars í ákvæði gildandi kjarasamnings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×