Enski boltinn

„Þú átt heima í eldhúsinu“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hipgrave við störf hjá BT Sport. Hér er hún með Ian Wright og Peter Taylor.
Hipgrave við störf hjá BT Sport. Hér er hún með Ian Wright og Peter Taylor.
Lindsey Hipgrave, sjónvarpsfréttakona á BT Sport í Englandi, greindi frá því á Twitter-síðu sinni að hún hafi fengið mikið skítkast á sig vegna ummæla sem hún lét falla um vítaspyrnu í leik Barcelona um helgina.

Sjá einnig: Sjáðu markið sem heimurinn er að tala um

Vítaspyrnan vakti mikla athygli og er Hipgrave þeirrar skoðunar að með henni hafi stórstjörnunar Lionel Messi og Luis Suarez sýnt andstæðingum sínum vanvirðingu.

Það stóð ekki á viðbrögðunum og beindist mikið af gagnrýninni sem hún fékk á sig að þeirri staðreynd að hún er kona að fjalla um fótbolta.

„Einhvers staðar er eldhús sem saknar einhvers,“ skrifaði einn í svari til Hipgrave og margir fleiri tóku í sama og mun verri streng eins og sjá má hér fyrir neðan.

Umræddar Twitter-færslur má sjá hér fyrir neðan sem og í frétt Daily Mail.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×