Lífið

Missti vatnið eftir að hafa dansað við Sorry með Justin Bieber

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flottur dans.
Flottur dans. vísir
Kortni McLady er áströlsk kona sem greinilega elskar tónlist Justins Bieber. Hún dansaði við lagið Sorry á dögunum og var þá komin 38 vikur á leið.

McLady hafði verið rúmliggjandi síðustu vikur en var farin að finna fyrir ákveðnum fyrirvaraverkjum. Þá mátti hún loksins standa upp úr rúminu og hreyfa sig, því barnið var einfaldlega á leiðinni.

Stuttu eftir að hún dansaði við lagið Sorry missti McLady vatnið og við vitum öll hvað gerist þá. Hér að neðan má sjá myndband af dansatriðinu en því miður náðist ekki þegar hún missti vatnið.

Exactly 3 months ago today at 5pm I took this video THEN at 9pm my waters broke!!! Excuse the jiggly bits I'm 38weeks pregnant hahaha, I present to you "Fletchers water break dance ft Little Cat"Happy quarter birthday Fletcher James! Mummy can't wait to embarrass you even more as you grow older

Posted by Kortni McLady on 29. janúar 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×