Getur ekki hugsað það til enda verði landsfundi ekki flýtt Heimir Már Pétursson skrifar 2. febrúar 2016 18:38 Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir. Vísir/GVA
Fylgi Samfylkingarinnar hefur verið langt undir kjörfylgi undanfarna mánuði og í síðustu könnunum jafnvel undir tíu prósentum. Áætlað hefur verið að formannskjör fari fram í flokknum í lok þessa árs, í aðdraganda landsfundar sem síðan færi fram í janúar eða febrúar á næsta ári. En þá yrðu aðeins nokkrir mánuðir í alþingiskosningar. Ólína setti færslu inn á Facebook síðu flokksins í dag þar sem segir:„Félagar góðir. Eftir Gallupkönnunina í gær hlýtur öllum að vera ljóst að við svo búið má ekki standa lengur. Flokkurinn mun ekki lifa til haustsins með þessu áframhaldi. Ég legg til að landsfundi og þar með formannskjöri verði flýtt fram í maí. Staðan er óþolandi fyrir alla sem málið varðar og nú er mál að linni.“Eftir þessari færslu að dæma ertu ekki mjög ertu ekki mjög bjartsýn á framtíð flokksins? „Það er alveg ljóst að flokkurinn þarf einhverja breytingu núna. Það þarf einhver hreyfing að fara af stað ef hann á að endurnæra sig og finna erindi sitt að nýju,“ segir Ólína.Í könnun Capacent Gallup sem birt var í gær mældist flokkurinn með 9,2 prósenta fylgi og kannanir hafa verið með flokkinn á þeim slóðum lengi. Ólína telur að það myndi gera flokknum gott að fara í hugmyndafræðilega vinnu sem fylgi landsfundum. „Og ég yrði ekki hiss ef þá yrði formannskosning. Annað hvort myndi þá núverandi formaður endurnýja sitt umboð eða nýr formaður kosinn í hans stað. Að minnsta kosti fengju flokksmenn þar með tækifæri til að veita einhverjum umboð. Á forsendum málefnaáherslna sem meirihluti flokksins stæði fyrir. Þá vonandi skýrari meirihluti en kom fram í síðasta formannskjöri,“ segir Ólína. En á landsfundi í fyrravor var Árni Páll Árnason kjörinn formaður með eins atkvæðis mun eftir óvænt mótframboð Sigríður Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, kvöldið fyrir formannskjör. „Það er auðvitað ekkert leyndarmál að það er forystuvandi í flokknum. Umboðið er ekki er ekki mjög skýrt. Umboð sem veltur á einu atkvæði er ekki mjög skýrt. Úr því þarf að bæta,“ segir þingmaðurinn að vestan. Framtíð flokksins sé ekki björt ef landsfundi verði ekki flýtt.Hverju spáir þú þá um gengi flokksins? „Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.
Mest lesið Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Innlent Höllurnar taka forystuna en aðeins hársbreidd á milli þeirra og Katrínar Innlent Börnin eru fundin Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Innlent „Þetta er bara eins og að finna gull“ Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Sjá meira