Landsfundi og formannskjöri að öllum líkindum flýtt Heimir Már Pétursson skrifar 3. febrúar 2016 19:03
Miklar líkur eru á að landsfundi og formannskjöri í Samfylkingunni verði flýtt vegna þrýstings á breytingar í flokknum eftir slakt gengi í könnunum undanfarin misseri. Stjórn flokksins kemur saman á morgun til að ræða málið. Þingflokkur Samfylkingarinnar fjallaði um tilvistar- eða forystuvanda flokksins á reglulegum fundi sínum í dag. Árni Páll Árnason formaður flokksins var ekki viðstaddur fundinn. En það er að heyra á þingmönnum að þeir styðji það að landsfundi og þar með formannskjöri verði flýtt. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir stakk á blöðru sem verið hefur að stækka innan flokksins að undanförnu í fréttum okkar í gær þegar hún sagðist ekki geta hugsað framtíð flokksins til enda yrði landsfundi og formannskjöri ekki flýtt.Ertu sammála henni um að landsfundi og um leið formannskjöri verði flýtt?„Ég held að það sé nú almennur vilji til að reyna sem fyrst að eyða allri óvissu í þessum efnum. Svona meðan það er í samræmi við lög flokksins og um það getur skapast góð samstaða. Ég bind bara góðar vonir við náum sameiginlegri niðurstöðu um það mjög fljótlega,“ sagði Helgi Hjörvar þingflokksformaður að loknum fundi í dag. Stjórn flokksins kemur saman strax á morgun til að ræða málin. En Samkvæmt lögum flokksins er forysta hans kosin til tveggja ára á landsfundi og ekki er hægt að kjósa nýja forystu á aukalandsfundi nema mikið liggi við, eins og t.d. þingrof. „Ég held að menn hljóti að leita allra leið til að finna niðurstöðu sem bæði eyðir óvissu og og sem allra breiðust samstaða getur tekist um. Ég held að formaðurinn muni leiða okkur í þeirri vinnu,“ segir Helgi. Katrín Júlíusdóttir varaformaður flokksins segir Samfylkinguna hafa legið of lengi í litlu fylgi. „Og það er ekkert óeðlilegt að þá horfi flokksmenn til þess að það þurfi að gera einhverja breytingu og við þurfum einhvers konar nýtt upphaf. Ég skil þess vegna kröfuna mjög vel í því ljósi,“ segir Katrín. Þetta sé ekki bara rætt í þingflokknum heldur vítt og breitt í stofnunum flokksins og sé ekki bara vandi samfylkingarinnar. Margir aðrir flokkar séu í svipaðri stöðu og jafnvel við að þurrkast út. „Þó varar maður auðvitað við því að það sé einhver ein töfralausn að til í því að skipta bara um einn karl í brúnni. Eða hvernig sem fólk hugsar það. Það er fleira sem þarf að koma til,“ segir Katrín. Krafa um landsfund sé skiljanleg á svona tímum. Katrín og Helgi hafa bæði verið nefnd af fjölmörgu áhrifafólki innan flokksins sem fréttastofa hefur rætt við sem líklegir formannsframbjóðendur.Þú sjálf, værir þú til í að bjóða þig fram til formennsku?„Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það og það verður bara skoðað þegar fram líða stundir,“ segir varaformaðurinn. „Það hefur enginn beðið mig um það. Ég held að við hljótum nú að fylkja okkur að baki þess formanns sem að er meðan hann er formaður. Ef það verða einhverjar breytingar á því ræða menn það þegar þar að kemur,“ segir Helgi Hjörvar.
Tengdar fréttir Getur ekki hugsað það til enda verði landsfundi ekki flýtt Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir segir núverandi formann hafa veikt umboð eftir síðasta landsfund þar sem hann náði kjöri með eins atkvæðis mun. 2. febrúar 2016 18:38 Krafa um að flýta landsfundi Samfylkingar hávær Samfylkingin á Akureyri hefur boðað til félagsfundar í kvöld vegna stöðunnar í flokknum. Kannanir hafa mælt flokkinn undir tíu prósenta fylgi í nokkurn tíma og er hljóðið þungt meðal Samfylkingarfólks. Lögð verður fram bókun á fundinum um að flýta aðalfundi svo hægt verði að kjósa nýjan formann í flokknum. 3. febrúar 2016 07:00 Árni Páll kveðst tilbúinn í að flýta formannskjöri Segist ekki ætla að hafa afskipti af ákvörðunum stofnana flokksins þar um. 2. febrúar 2016 20:06 Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira
Getur ekki hugsað það til enda verði landsfundi ekki flýtt Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir segir núverandi formann hafa veikt umboð eftir síðasta landsfund þar sem hann náði kjöri með eins atkvæðis mun. 2. febrúar 2016 18:38
Krafa um að flýta landsfundi Samfylkingar hávær Samfylkingin á Akureyri hefur boðað til félagsfundar í kvöld vegna stöðunnar í flokknum. Kannanir hafa mælt flokkinn undir tíu prósenta fylgi í nokkurn tíma og er hljóðið þungt meðal Samfylkingarfólks. Lögð verður fram bókun á fundinum um að flýta aðalfundi svo hægt verði að kjósa nýjan formann í flokknum. 3. febrúar 2016 07:00
Árni Páll kveðst tilbúinn í að flýta formannskjöri Segist ekki ætla að hafa afskipti af ákvörðunum stofnana flokksins þar um. 2. febrúar 2016 20:06