Glamour

Bradley Cooper og Jake Gyllenhaal lesa hlutverk Cher

Ritstjórn skrifar
Á heimasíðu W magazine má sjá myndband þar sem leikararnir Seth Rogen, Jake Gyllenhaal, Paul Dano og Bradley Cooper lesa hlutverk Cher í Clueless, líkt og um áheyrnarprufu væri að ræða.

Cher þekkja allir Clueless aðdáendur, en hún var leikin af Alicia Silverstone árið 1995, og í myndbandinu lesa leikararnir eitt af þekktustu atriðunum með Cher, þar sem hún er í kappræðutíma í skólanum og færir á einstakan hátt rök fyrir því að flóttamenn frá Haítí séu velkomnir í landið.

En sjón er sögu ríkari, þetta er með betri myndböndum sem við höfum séð. 






×