Keypti lottómiða fyrir 400 kall og vann 86 milljónir Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. janúar 2016 11:26 Það er ekki amalegt að vinna 86 milljónir króna skattfrjálst. Vísir/Valli „
Nei, vinningshafinn hefur ekki gefið sig fram en ég nú von á að hann eða hún geri það í dag,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, aðspurður um hvort að Íslendingurinn sem vann 86 milljónir í Víkingalottói í gær sé kominn fram. Vinningsmiðinn var keyptur í Samkaup á Selfossi og segir Stefán að þarna hafi verið um frábæra fjárfestingu að ræða; lottómiðinn kostaði 400 kall sem svo urðu 86 milljónir króna. Fjölmiðlar greindu fljótlega frá því að Íslendingurinn hafi verið einn af þremur sem fékk fyrsta vinning í Víkingalottóinu og segir Stefán að vefsíða lotto.is hafi nánast farið á hliðina. „Það var mjög mikið álag á vefnum þar sem margir hafa verið að athuga hvort þeir hafi fengið þennan stóra vinning. Það þurfti því að kalla út aukamannskap vegna álagsins en vefurinn þoldi þetta nú allt saman,“ segir Stefán. Þó að vinningurinn sé vissulega stór þá er þetta ekki stærsti vinningurinn sem Íslendingur unnið í Víkingaslottó. Sá stærsti nam 120 milljónum króna. Þá eru hundruð manna sem vinni vikulega smærri vinninga í Víkingalottóinu að sögn Stefáns. Í gær hafi til dæmis rúmlega 700 manns unnið 1000 kall og fimm unnu 85 þúsund krónur. Stefán segir að það taki um fimm vikur að fá 86 milljónirnar útgreiddar. Þá verði vinningshafanum boðið upp á ráðgjöf eins og öllum þeim sem vinna yfir 5 milljónir hjá Íslenskri getspá. Stefán segir vinningshafa mjög duglega við að nýta sér ráðgjöfina sem sé mjög ánægjulegt.
Tengdar fréttir Íslendingur vann rúmar 86 milljónir í Víkingalottó Miðinn var keyptur á Selfossi. 20. janúar 2016 19:37 Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira
Íslendingur vann rúmar 86 milljónir í Víkingalottó Miðinn var keyptur á Selfossi. 20. janúar 2016 19:37