Lífið

Spiluðu Bieberlagið Sorry á risapíanói í þætti Corden

Atli Ísleifsson skrifar
James Corden og Sean Hayes.
James Corden og Sean Hayes.
Bandaríski leikarinn Sean Hayes og breski þáttastjórnandinn James Corden spiluðu saman Justin Bieber lagið Sorry á risapíanói í spjallþætti Corden á fimmtudaginn.

Eftir smá upphitun á píanóinu ákváðu þeir félagar að spreyta sig á einhverju lagi sem vinsælt væri meðal ungs fólks og varð Sorry fyrir valinu.

Corden og Hayes áttu í talsverðum vandræðum með að fylgja taktinum enda reynir á að spila á píanó af þessari stærðargráðu.

Hayes er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum um Will og Grace.

Sjá má atriðið í spilaranum að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×