Innlent

Dómurinn taldi framburð vitnis í Chesterfield-máli óstöðugan

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru ákærðir í svokölluðu Chesterfield-máli.
Þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru ákærðir í svokölluðu Chesterfield-máli. vísir/gva
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson voru allir sýknaðir í svokölluðu Chesterfield-máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Þremenningarnir voru allir á meðal æðstu stjórnenda Kaupþings sem féll í október 2008. Þeir voru ákærðir fyrir umboðssvik. Ákæruvaldið taldi að þeir hefðu misnotað aðstöðu sína sem stjórnendur Kaupþings í 510 milljóna evra lánveitingum til nokkurra eignarhaldsfélaga sem voru í eigu vildarviðskiptavina bankans. Lánin voru veitt til að kaupa lánshæfistengd skuldabréf af Deutsche Bank sem tengd voru skuldatryggingarálagi Kaupþings. Markmiðið var að lækka skuldatryggingarálagið.

Dómurinn tekur annars vegar afstöðu til ákæruliða eitt og þrjú þar sem fjallað er um lán til félaganna vegna skuldabréfakaupanna og svo hins vegar til ákæruliða tvö og fjögur þar sem fjallað er um lán sem veitt voru til að mæta veðköllum Deutsche Bank.

Niðurstaða dómsins er að lánin hafi ekki verið veitt án trygginga og þar af leiðandi hafi Hreiðar, Sigurður og Magnús ekki stefnt fé bankans í verulega hættu. Hvað varðar lán sem veitt voru félögunum vegna veðkalla Deutsche Bank þegar skuldatryggingarálag Kaupþings hækkaði telur dómurinn að sama skapi ósannað að með þeim hafi þremenningarnir misnotað aðstöðu sína og stefnt fé bankans í verulega hættu.

Vikið er að því í dómnum að lykilvitni í málinu, Halldór Bjarkar Lúðvígsson, hafi verið óstöðugur í þeim skýrslum sem hann hefur gefið í málinu, annars vegar undir rannsókn málsins og hins vegar fyrir dómi. Verði að hafa þetta í huga þegar sönnunargildi skýrslna Halldórs Bjarkars er metið.


Tengdar fréttir

Hreiðar Már, Magnús og Sigurður sýknaðir

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, af ákæru í CLN-málinu svokallaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×