Umfangsmikil áfengisviðskipti á Facebook Jakob Bjarnar skrifar 28. janúar 2016 13:15 Umfangsmikil viðskipti með áfengi fer fram í lokuðum hópi á Facebook. getty
Á Facebook kennir ýmissa grasa og er þar meðal annars að finna ákaflega virkan hóp þar sem höndlað er með áfengi. Hópurinn er lokaður en þar fara fram að því er virðist verulega umfangsmikil viðskipti. Heimildarmaður Vísis, sem er meðlimur í hópnum og til þess að gera nýgenginn í hann, segir það hafa komið sér mest á óvart hversu virkt þetta samfélag er en meðlimir þar eru 2.866 talsins. „Verð á ferðinni í kvöld, er með TUBORG, EGILS GULL, VÍKING GYLLTAN. Einnig SMIRNOFF, ÓPAL og TÓPAS Sími [XXXXXXX] (Nova) það er best að hringja“. Heimildarmaður Vísis segir að nú langi sig til dæmis í bjór og fyrir fjórum mínútum var einn að pósta að hann væri á ferðinni með átta tegundir í skottinu. Nokkuð líflegt er um að litast í hópnum, samkvæmt skjáskotum sem Vísir er með undir höndum. Þannig spyr einn: „Er einhver með landa?“ Og honum er svara að tiltekinn sölumaður sé komið aftur á ferðina og sá sé bestur. Með fylgir svo símanúmer. Annar segist vera á ferðinni með „rútur í skottinu“ og enn einn segir: „Vantar bjór í kó. eikkur á ferðinni?“ Og einn spyr eftir vodka, einhver? Og setur við kr 7,000. Honum er svarað að það sé inni í myndinni, Reykja vodka 1l sem fer á 9 þúsund krónur, og bent á að slíkt fari á 8890 krónur í ríkinu. Ekki getur það talist mikil álagning miðað við útselt verð úr ÁTVR. Vísir sendi spurningu á þann mann sem skráður er umsjónarmaður hópsins, þá hvort þetta framtak megi ekki teljast á gráu svæði gagnvart lögum, en þegar þetta er skrifað hefur enn ekki borist svar við þeirri spurningu.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Fleiri fréttir Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Sjá meira