Enski boltinn

Brottrekstur Benítez gæti hjálpað United að landa Bale

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gareth Bale gæti komið aftur í enska boltann?
Gareth Bale gæti komið aftur í enska boltann? vísir/getty
Enskir miðlar greindu frá því í gærkvöldi og aftur í morgun að líkur Manchester United á að landa Gareth Bale frá Real Madrid í sumar jukust verulega þegar Rafael Benítez var látinn fara sem þjálfari Real í gær.

Velski framherjinn er sagður hafa verið mjög ánægður með störf Benítez og líst ekkert á að vera að fá þriðja þjálfarann eftir aðeins tvö og hálft ár í spænsku höfuðborginni.

Manchester United er búið að vera mjög áhugasamt um að fá Bale til sín undanfarin misseri og brottrekstur Benítez gæti hjálpað félaginu að lokka Walesverjann til sín í sumar.

Sjá einnig:Zidane mætti með alla fjölskylduna | Myndir

United virðist ætla að vera stórtækt á félagaskiptamarkaðnum í sumar ef marka má fregnir síðustu daga. Það er sagt ætla að borga 140 milljónir punda fyrir Neymar.

Eitt af fyrstu verkefnum Zinedine Zidane sem þjálfara Real Madrid verður að halda Gareth Bale hjá félaginu, en franska fótboltagoðið stýrir sínum fyrsta leik um næstu helgi.

Ef Gareth Bale endar hjá Manchester United væri það kannski eilítið ljóðrænt að Gary Neville, fyrrverandi fyrirliði United og núverandi þjálfari Valencia, var maðurinn sem endanlega kom Benítez úr starfi.

Florentinu Peréz, forseti Real Madrid, og stjórn félagsins gafst endanlega upp á Benítez eftir 2-2 jafntefli Real gegn Valencia á sunnudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×