Klopp: Þurfum að sleppa úr þessari meiðslahringekju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2016 22:28 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var sáttur með 1-0 sigur á Stoke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum en sá líka tvo leikmenn togna aftan í læri í fyrri hálfleiknum. „Mér líður skringilega. Ég er stoltur af liðinu fyrir að koma til baka eftir tapið á móti West Ham. Við unnum 1-0 en misstum tvo menn í slæm meiðsli og við vorum því ekki bara heppnir í kvöld," sagði Jürgen Klopp við Sky Sports eftir leikinn. „Nú eru þrír miðverðir meiddir hjá okkur og sá eini sem er í lagi fékk síðan krampa undir lokin," sagði Jürgen Klopp. Dejan Lovren meiddist í kvöld, Mamadou Sakho meiddist um síðustu helgi og Kolo Touré píndi sig í gegnum lokamínútur leiksins.Sjá einnig:Jordon Ibe hetja Liverpool á móti Stoke „Stærsta vandamálið eftir þennan leik er að við vorum að missa tvo og jafnvel þrjá leikmenn í meiðsli. Þetta er afar pirrandi og við erum að glíma við alltof mörg meiðsli. Leikmenn eru að koma til baka eftir meiðsli og aðrir eru að meiðast. Þetta er hringekja sem við verðum að komast út úr," sagði Klopp. „Það eina sem ég get samt gagnrýnt varðandi leik liðsins er áfram það hvernig við erum að klára færin. Skipulagið var gott, við spiluðum góðan fótbolta en það vantaði mörkin," sagði Klopp.Philippe Coutinho meiddist eftir aðeins 18 mínútur.Vísir/GettyDejan Lovren fór meiddur af velli á 34. mínútu.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Mari meyr eftir sigurinn Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Þambar kakó og rjóma eftir magnað afrek: „Upp og niður eins og lífið“ Sport Þorleifur horfði á Íslandsmet sitt falla: „Kom á óvart“ Sport Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Sport Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Enski boltinn Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Fleiri fréttir Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Í beinni: Crystal Palace - Manchester United | Fara í sjötta sætið með sigri Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Sjá meira