Innlent

Rússneska stjórnarandstaðan gefur út skýrslu

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Ilya Yashin bandamaður Nemtsov á blaðamannafundi í Moskvu
Ilya Yashin bandamaður Nemtsov á blaðamannafundi í Moskvu MYND/AP

Tvö hundruð og tuttugu rússneskir hermenn féllu í tveimur bardögum í Austur-Úkraínu samkvæmt skýrslu sem unnin var af rússnesku stjórnarandstöðunni sem birtist í gær.

Í skýrslunni má finna upplýsingar sem teknar voru saman af stjórnarandstæðingnum Boris Nemtsov, sem skotinn var til bana í Moskvu síðastliðinn febrúar.

Skýrslan sem heitir „Stríð Pútíns“ hefur verið gefin út á nýjum rússneskum vefmiðli.

Ilya Yashin, einn bandamanna Nemtsovs, lagði lokahönd á skýrsluna. Yashin sagði skýrsluna vera unna af „sönnum þjóðernissinna sem er andvígur einangrunarstefnu forsetans Pútíns“. Fram koma upplýsingar um hvernig 150 rússneskir hermenn voru drepnir í lykilbardaga í ágúst 2014 við smábæinn Ilovaisk í Donetsk-héraði í Úkraínu.

Þá segir að nýlega hafi 70 rússneskir hermenn fallið í bardaga um bæinn Debaltseve, sem stuðningsmenn rússneskra uppreisnarmanna náðu á sitt vald eftir að vopnahlé var undirritað.

„Allar vangaveltur um rússnesk afskipti eru viðkvæmar í Moskvu og leitin að prentsmiðju sem fékkst til að prenta skýrsluna hefur reynst erfið,“ sagði Yashin.

Á sama degi og skýrsla stjórnarandstæðinganna var birt funduðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, og forseti Rússlands. Þetta var fyrsta heimsókn Kerrys til Rússlands eftir að átök í Úkraínu hófust árið 2014.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×