Erlent

Þýskir þingmenn telja rétt að borga

guðsteinn bjarnason skrifar
Gesine Schwan, fyrrverandi forsetaframbjóðandi þýskra sósíaldemókrata segir Grikki eiga rétt á frekari stríðsskaðabótum.
Gesine Schwan, fyrrverandi forsetaframbjóðandi þýskra sósíaldemókrata segir Grikki eiga rétt á frekari stríðsskaðabótum. fréttablaðið/EPA
Áhrifamiklir þingmenn úr röðum bæði Sósíaldemókrata og Græningja hafa nú tekið undir með Grikkjum og segja rétt að þýsk stjórnvöld greiði Grikklandi frekari stríðsskaðabætur.

„Ég held að af hálfu Þjóðverja væri gott ef við horfðumst í augu við okkar eigin fortíð. Þetta snýst um að viðurkenna að við beittum fólk miklum órétti í Grikklandi,“ hefur þýska tímaritið Der Spiegel eftir Gesine Schwan, sem tvisvar hefur verið í framboði til forseta Þýskalands fyrir hönd Sósíaldemókrataflokksins.

Ralf Stegner, varaformaður flokksins, tekur undir þetta: „Þetta snýst um það hvernig við umgöngumst okkar eigin sögu.“

Anton Hofreiter, þingflokksformaður Græningja, er sömu skoðunar: „Þýskaland getur ekki bara sópað þessum kröfum Grikklands út af borðinu,“ segir hann. „Hvorki siðferðilega né lagalega er þessum kafla endanlega lokið.“

Bæði Sósíaldemókratar og Græningjar eru í stjórnarandstöðu á þýska þinginu. Innan stjórnarandstöðunnar hafa þó til þessa einungis þingmenn Vinstriflokksins, sem eru arftakar gamla austurþýska Kommúnistaflokksins, viljað taka undir kröfur Grikkja um stríðsskaðabætur.

Þýska stjórnin hefur vísað þessum kröfum alfarið á bug.

Auk Grikkja hafa reyndar Rússar einnig farið fram á nýjar skaðabætur frá Þjóðverjum vegna framferðis þeirra í stríðinu. Rússneska dagblaðið Ísvestía skýrði í byrjun febrúar frá því að hópur rússneskra þingmanna ætli sér að setja nefnd í þetta mál og krefjast bóta.

Þjóðverjar hafi aldrei greitt Rússum raunverulegar skaðabætur, því einu bæturnar sem Rússar fengu á sínum tíma voru eignir í Austur-Þýskalandi sem Sovétríkin gátu sjálf hirt af Þjóðverjum. Aðallega hafi þetta verið húsgögn, föt og iðn af ýmsu tagi, að því er fram kemur í frásögn þýska tímaritsins Der Spiegel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×