Lífið

Flexaði vöðvana í Talent og fékk fimmtíu vinabeiðnir

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Dagbjartur kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu og spjótkast á hug hans allan.
Dagbjartur kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu og spjótkast á hug hans allan. vísir/valli
Dagbjartur Daði Jónsson kom fram í þriðja þætti Ísland Got Talent en þar hermdi hann á frumlegan hátt eftir útgáfu Andy Serkis af Gollri úr Hringadróttinssögu. Vinabeiðnum hefur rignt yfir drenginn á Facebook síðan þátturinn var sýndur á sunnudaginn.

„Facebook sprakk eiginlega hjá mér. Ég er kominn með einhverjar fimmtíu vinabeiðnir,“ segir hinn sautján ára gamli Dagbjartur. Nær allar vinabeiðnirnar komu frá stelpum.

Eftir að dómarar höfðu gert upp hug sinn bauð Jón Jónsson honum upp á að nýta síðustu sekúndurnar á sviðinu til að hnykla vöðvana. Eftir þáttinn tísti Dagbjartur á Twitter að Jón Jónsson væri sennilega besti vængmaður sögunnar og hann ætti erfitt með svefn sökum truflana frá Facebook. „Jón á einhver verðlaun skilið fyrir þetta,“ segir Dagbjartur.



Aðspurður segist hann hafi lengi getað hermt eftir Gollri. Hann hafi uppgötvað það í sjöunda bekk en stutt er síðan hann áttaði sig á því að það væru fáir sem byggju yfir þessum hæfileika.

„Ég ákvað sjálfur að taka þátt. Það var engin utanaðkomandi pressa.“ Hann fékk þrjú nei frá dómurunum en Selma Björnsdóttir spurði hann hvort hann ætti til fleiri eftirhermur í pokahorninu. Dagbjartur neitaði því en sagði að hann væri búinn að undirbúa atriði ef hann kæmist áfram.

„Ég hafði hugsað mér að láta Gollri og Smjagal taka „rappbattl“. Ég var byrjaður að undirbúa textann og ætlaði að hafa frumsaminn takt undir.“

Hann ætlaði ekki að láta þar við sitja heldur vera í fullum skrúða, aðeins íklæddur lendaskýlu og málaður sem Gollrir. Niðurstaða dómaranna þýðir að það atriði mun líklega ekki rata á skjái landsmanna.

Dagbjartur stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi þegar hann er ekki upptekinn við að herma eftir persónu Tolkiens. Hann stundar einnig spjótkast af kappi en Dagbjartur kemur úr mikilli frjálsíþróttafjölskyldu. Móðir hans er hlaupadrottningin Martha Ernstsdóttir og hann og Aníta Hinriksdóttir eru systkinabörn.

„Spjótkastið er það skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Dagbjartur. Í fyrra varð hann í fjórða sæti á Meistaramóti Íslands í spjótkasti fullorðinna auk þess að bera höfuð og herðar yfir keppendur í unglingaflokki. Hann keppti einnig í undankeppni Ólympíuleika æskunnar í Bakú í Aserbaídsjan.

„Ég veit ekki hvort þetta „flex“ mun skila einhverju en það væri gaman,“ segir hann.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×