Erlent

Myrkvuð mótmæli í borgum Þýskalands

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Á mánudagskvöldið, þegar boðað var til mótmæla gegn „íslamsvæðingu“, var ákveðið að Kölnardómkirkjan yrði ekki upplýst eins og venjulega.
Á mánudagskvöldið, þegar boðað var til mótmæla gegn „íslamsvæðingu“, var ákveðið að Kölnardómkirkjan yrði ekki upplýst eins og venjulega. fréttablaðið/AP
Á mánudagskvöldið mættu átján þúsund manns til mótmælasamkomu í Dresden, sem boðað var til af samtökunum PEGIDA sem berjast gegn „íslamsvæðingu Vesturlanda“.

Þetta var í ellefta sinn síðan í október sem efnt var til mótmæla af þessu tagi á mánudagskvöldum í Dresden. Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri.

Um þrjú þúsund manns mættu hins vegar á sama tíma til mótmælafundar í Dresden gegn PEGIDA.

Í fleiri borgum Þýskalands var einnig efnt til mótmælafunda beggja fylkinga, og voru andstæðingar PEGIDA þar miklu fleiri.

Í Berlín létu aðeins nokkur hundruð manns sjá sig á mótmælafundi PEGIDA-samtakanna, en nærri sex þúsund mættu til að mótmæla málflutningi þeirra. Þúsundir manna mótmæltu einnig PEGIDA í Köln, Dresden og Stuttgart, en sárafáir létu þar sjá sig til að sýna samstöðu með PEGIDA.

Alls er talið að á mánudagskvöldið hafi vel yfir tuttugu þúsund manns tekið þátt í mótmælum í borgum Þýskalands gegn þeirri múslimahræðslu sem PEGIDA stendur fyrir. Einungis í Dresden drógu mótmæli PEGIDA-samtakanna sjálfra að sér umtalsverðan fjölda fólks.

Víða var einnig gripið til táknrænna aðgerða til að lýsa yfir andstöðu við múslimahræðslu PEGIDA-samtakanna. Þannig ákváðu kirkjuyfirvöld í Köln að hafa dómkirkjuna þar ekki upplýsta, eins og venja er á kvöldin, heldur grúfði myrkur yfir henni á meðan mótmælafundurinn stóð yfir.

Í Dresden voru einnig öll ljós slökkt í Semper-óperunni og glerhöll Volkswagen-fyrirtækisins á meðan á mótmælum PEGIDA stóð. „Volkswagen styður opið, frjálst og lýðræðislegt samfélag,“ sagði í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þótt forsvarsmenn PEGIDA fullyrði að samtökin ali hvorki á öfgum né fordómum, þá hafa nýnasistar og aðrir hægri þjóðernissinnar tekið boðskap hennar fagnandi og fjölmennt til mótmælafundanna í Dresden.

Í stefnuyfirlýsingu samtakanna er reynt að draga sem mest úr nýnasísku yfirbragði, meðal annars með því að lýsa yfir stuðningi við flóttamenn og mannréttindi. En þegar lengra er lesið í stefnuskránni koma í ljós fullyrðingar um að verja þurfi hina gyðing-kristnu menningu Vesturlanda, og sérstaklega er þar varað við róttæklingum, haturspredikurum og siðareglum múslima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×