Innlent

Stjórnlagaráðsfólk í leit að forseta

Jakob Bjarnar skrifar
Katrín og co leita nú logandi ljósi og vilja finna nýjan og umbótasinnaðan forseta sem líklegur er til að ýta við stjórnarskrármálinu.
Katrín og co leita nú logandi ljósi og vilja finna nýjan og umbótasinnaðan forseta sem líklegur er til að ýta við stjórnarskrármálinu.
Stjórnarskrárfélagið hefur boðað til fundar 9. janúar, strax á næsta ári, í sal í Háskólanum í Reykjavík klukkan 15. Fundurinn verður ekki auglýstur sérstaklega en yfirskrift fundarins er „Samtal um forsetaembættið og nýja stjórnarskrá“.

Samkvæmt heimildum Vísis er unnið skipulega að því að finna forsetaframbjóðanda sem er umbótasinnaður; frambjóðanda sem mun vinna markvisst að því að ný stjórnarskrá verði tekin upp.

Leynifundir um nýjan forseta

Nýr formaður Stjórnarskrárfélagsins er Katrín Oddsdóttir lögmaður en hún boðar, í skilaboðum til fundarmanna, að ætlunin sé að „ræða við þá einstaklinga sem heyrst hefur að séu að hugsa um að gefa kost á sér til forseta og bjóða þeim til samtals um stjórnarskrármál og hvort hægt sé að mjaka þeim málum áfram í komandi kosningabaráttu, hafi frambjóðendur á því áhuga yfir höfuð.“

Þröngur hópur þeirra sem tengjast og skipuðu stjórnlaganefnd, þá sem lagði drög að nýrri stjórnarskrá, hefur fundað æ síðan ljóst var að tillögum þeirra yrði ýtt til hliðar. Stjórnarskrármálið hefur verið heitt meðal margra, ekki síst þeirra sem skiluðu Skýrslu stjórnlaganefndar 2011 en fyrir liggur að Ólafur Ragnar Grímsson forseti styður ekki þær tillögur né stjórnarflokkarnir. Þetta er þrátt fyrir að tillögurnar hafi verið samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2012.

Hvað gerir Grímsson?

Nú líður að Nýársávarpi forseta Íslands en þá loks mun koma í ljós hvort Ólafur Ragnar Grímsson hyggst bjóða sig fram á nýjan leik eða ekki. Það skiptir öllu máli gagnvart þeim sem hugsanlega vilja gefa kost á sér því eitt er að bjóða sig fram til forseta, annað er að bjóða sig fram til forseta og það gegn sitjandi forseta sem vill sitja áfram. Það kallar á allt aðra taktík.

Ýmsir hafa verið nefndir til sögunnar sem hugsanlegir frambjóðendur en þó aðeins einn sem gefið hefur sig fram og er sá Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og íþróttafrömuður. Hrannar Pétursson, verkefnisstjóri hjá forætisráðuneytinu, hefur gefið sig fram sem líklegan en aðrir sem nefndir hafa verið eru Katrín Jakobsdóttir, formaður Vg, en samkvæmt heimildum Vísis er stjórnlagaráðsfólk spennt fyrir þeim kosti og svo Bergþór Pálsson söngvari sem hefur verið nefndur til sögunnar um hríð og fengið fjölda áskorana þess efnis að fara fram.

Uppfært klukkan 17:14

Katrín Oddsdóttir vill koma því á framfæri að ekki sé verið að leita að frambjóðanda til að styðja heldur vilji félagið kalla fram skoðanir mögulegra frambjóðenda á stjórnarskránni í sambandi við forsetaembættið.

Þá minnir Katrín á að fundurinn verði auglýstur á meðal félagsmanna.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×