Bílar

Mazda MX-5 valinn bíll ársins í Japan

Finnur Thorlacius skrifar
Mazda MX-5.
Mazda MX-5.
Mazda MX-5 hefur verið valinn Bíll ársins í Japan 2015-2016. Mazda MX-5 er sjötta módelið af nýrri kynslóð Mazda bíla sem eru búnir hinni margverðlaunuðu SkyActiv vélartækni og hannaðir eftir KODO – Soul of Motion hugmyndafræðinni.

Þessi létti og lipri, tveggja sæta sportbíll er með drif á afturhjólunum. Við endurhönnun Mazda MX-5 var lögð áhersla á akstursánægju en um leið tókst hönnuðum Mazda að létta bílinn um heil 100 kg. Í forgangi var þó jafnframt að aðgengi væri auðvelt og bíllinn væri praktískur fyrir daglegt líf.

„Við erum afar stolt og þakklát og það er sannur heiður að Mazda MX-5 skuli hljóta þessi virtu verðlaun. Þessi verðlaun eru frábær innblástur til þess að halda áfram á þeirri braut sem við erum komin á. Við munum halda áfram að búa til bíla með frábæra aksturseiginleika og stefnan tekin á að verða hinn eini sanni bíll fyrir okkar viðskiptavini og að þeir muni leita aftur og aftur til okkar.“ sagði Masamichi Kogai, forstjóri Mazda við afhendingu verðlaunanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×