Innlent

Skíðasvæðin víða opin í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Búist má við mörgum í brekkunum í dag. Hér er fólk að renna sér á skíðasvæðinu á Siglufirði
Búist má við mörgum í brekkunum í dag. Hér er fólk að renna sér á skíðasvæðinu á Siglufirði mynd/aðdsend
Skíðasvæði landsins verða meira og minna opin í dag og færð víða með besta móti.

Í Bláfjöllum er opið frá klukkan 10 til 17 í dag en þar er hiti rétt undir frostmarki og 2 til 3 metra vindhraði á sekúndu.

„Sem sagt frábært veður,“ eins og það er orðað á vef skíðasvæðisins.  Skíðalyfturnar Kóngurinn og Töfrateppið eru enn bilaðaðar eftir að hafa orðið fyrir eldingum en Drottningin, Kaðallinn og byrjendalyftur við Bláfjallaskála verða opnar í dag sem og flestar lyftur á suðursvæði. Þá verður göngubraut lögð um svæðið klukkan 10.

Fjórar skíðalyftur verða þá opnar í Hlíðarfjalli í dag en þar er nú um 10 stiga frost og hægur norðvestan vindur. Skíðasvæðið opnar klukkan 10 og er opið til 16.

Skíðasvæðið í Tindastól verður að sama skapi opið í dag frá klukkan 11 til kl 16.

Staðkunnugir segja veðrið þar nú vera með besta móti; logn, -6 stiga hiti og léttskýjað.  Veðrið leikur einnig um skíðasvæðið á Siglufirði sem verður opið í dag frá 11 til 16. Þar er sunnan gola, 5 stiga frost og heiðskýrt.

Skíðasvæðið í Skálafelli er lokað.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×