Vond skilaboð lögreglu Eva H. Baldursdóttir skrifar 10. nóvember 2015 07:00 Tveir menn hafa stöðu sakbornings í tveimur aðskildum nauðgunarmálum. Samkvæmt fréttaflutningi er þolendum í báðum tilvikum nauðgað eftir bekkjarskemmtanir, í annað skipti a.m.k. í íbúð í Hlíðunum þar sem gerendur beittu hrottalegu líkamlegu – og kynferðislegu ofbeldi. Níu dagar eru á milli meintra nauðgana, sem falla í þann flokk að teljast bæði hóp- og raðnauðganir. Grófari verða kynferðisbrotin ekki. Lögreglan hefur gefið það upp að í samræmi við framvindu rannsóknarinnar hafi það verið metið svo að ekki væri hægt að úrskurða sakborningana í gæsluvarðhald út frá rannsóknarhagsmunum eða almannahagsmunum. Eins og málið horfir við samkvæmt fréttaflutningi er ljóst að skilyrði 95. gr. sakamálalaga eru engu að síður uppfyllt. Kryfjum þessi ummæli lögreglu. Af hverju ættu rannsóknarhagsmunir ekki að krefjast gæsluvarðhalds? Er það vegna þess að þau gögn sem lögregla hefur undir höndum séu þess eðlis að þau séu fullnægjandi til sakfellingar?Túlkar skilyrði of þröngt Í ljósi alvarleika brotanna og þess að þau eru framkvæmd að yfirlögðu ráði hljóta almannahagsmunir þá að leiða til gæsluvarðhalds. Mat lögreglu er hins vegar að svo sé ekki. Í d-lið 95. gr. segir að úrskurða megi sakborning í gæsluvarðhald ef það er nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Í 2. mgr. 95. gr. kemur fram að ef sterkur grunur leikur á að sakborningur hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi megi úrskurða í gæsluvarðhald, sé brotið þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, en nauðgun getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Það stafar hætta af mönnum sem eru grunaðir um hrottalegar og skipulagðar nauðganir. Mat lögreglu um að almannahagsmunir krefjist ekki gæsluvarðhalds vegna þessara kynferðisafbrota er ekki aðeins siðferðislega rangt, heldur líka lögfræðilega, ef það sem fram er komið um atvik málsins er rétt. Lögregla er þá ekki að sinna grundvallarskyldu sinni, að tryggja öryggi borgaranna. Að endingu er það svo dómstóla að meta hvort skilyrðin séu uppfyllt, en lögregla leggur það mat ekki í hendur dómstóla. Í stað þess túlkar hún skilyrði gæsluvarðhalds of þröngt og á sama tíma sendir þau skilaboð til samfélagsins að nauðganir séu ekki svo alvarlegar. Það eru vond og hættuleg skilaboð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Dómsmálaráðherran og réttarríkið Ólafur Kjartansson Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Stjórnmálamenn sem reiða sig á gleymsku kjósenda Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun 18 mánuðir Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnmálamenn sem reiða sig á gleymsku kjósenda Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Dómsmálaráðherran og réttarríkið Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins skrifar Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Sjá meira
Tveir menn hafa stöðu sakbornings í tveimur aðskildum nauðgunarmálum. Samkvæmt fréttaflutningi er þolendum í báðum tilvikum nauðgað eftir bekkjarskemmtanir, í annað skipti a.m.k. í íbúð í Hlíðunum þar sem gerendur beittu hrottalegu líkamlegu – og kynferðislegu ofbeldi. Níu dagar eru á milli meintra nauðgana, sem falla í þann flokk að teljast bæði hóp- og raðnauðganir. Grófari verða kynferðisbrotin ekki. Lögreglan hefur gefið það upp að í samræmi við framvindu rannsóknarinnar hafi það verið metið svo að ekki væri hægt að úrskurða sakborningana í gæsluvarðhald út frá rannsóknarhagsmunum eða almannahagsmunum. Eins og málið horfir við samkvæmt fréttaflutningi er ljóst að skilyrði 95. gr. sakamálalaga eru engu að síður uppfyllt. Kryfjum þessi ummæli lögreglu. Af hverju ættu rannsóknarhagsmunir ekki að krefjast gæsluvarðhalds? Er það vegna þess að þau gögn sem lögregla hefur undir höndum séu þess eðlis að þau séu fullnægjandi til sakfellingar?Túlkar skilyrði of þröngt Í ljósi alvarleika brotanna og þess að þau eru framkvæmd að yfirlögðu ráði hljóta almannahagsmunir þá að leiða til gæsluvarðhalds. Mat lögreglu er hins vegar að svo sé ekki. Í d-lið 95. gr. segir að úrskurða megi sakborning í gæsluvarðhald ef það er nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Í 2. mgr. 95. gr. kemur fram að ef sterkur grunur leikur á að sakborningur hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi megi úrskurða í gæsluvarðhald, sé brotið þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, en nauðgun getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Það stafar hætta af mönnum sem eru grunaðir um hrottalegar og skipulagðar nauðganir. Mat lögreglu um að almannahagsmunir krefjist ekki gæsluvarðhalds vegna þessara kynferðisafbrota er ekki aðeins siðferðislega rangt, heldur líka lögfræðilega, ef það sem fram er komið um atvik málsins er rétt. Lögregla er þá ekki að sinna grundvallarskyldu sinni, að tryggja öryggi borgaranna. Að endingu er það svo dómstóla að meta hvort skilyrðin séu uppfyllt, en lögregla leggur það mat ekki í hendur dómstóla. Í stað þess túlkar hún skilyrði gæsluvarðhalds of þröngt og á sama tíma sendir þau skilaboð til samfélagsins að nauðganir séu ekki svo alvarlegar. Það eru vond og hættuleg skilaboð.
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun