Bílar

Volkswagen tekið af umhverfislista Dow Jones

Finnur Thorlacius skrifar
Hlutabréf í Volkswagen hafa fallið um 41%.
Hlutabréf í Volkswagen hafa fallið um 41%.
Til er listi hjá Dow Jones yfir þau 10% fyrirtækja sem talin eru leiðandi í umhverfislegu tilliti í hverri atvinnugrein og á þeim lista hefur Volkswagen verið undanfarið. Nú hefur S&P Dow Jones Indices LLC og RobecoSAM tekið Volkswagen af þessum lista eftir dísilvélasvindl fyrirtækisins.

Þar með er Volkswagen ekki lengur talið meðal fyrirtækja sem leiða umhverfisvæna stefnu í bíliðnaði. Hlutabréf í Volkswagen stóð í nærri 164 evrum á hlut fyrir tilkynningu EPA í Bandaríkjunum, en standa nú í 97,75 evrum.

Það er hrun sem nemur um 41% á hlutabréfum í Volkswagen. Það þýðir að virði hlutbréfanna hefur fallið um 3.940 milljarða króna frá 18. september og vart er til dæmi um annað eins hrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×