Innlent

Gripinn með tölvur og skjávarpa úr Fjölbrautarskóla Suðurnesja

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sex tölvum auk sjávarpa var stolið úr Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Þrjár tölvanna auk skjávarpans fundust í fórum mannsins.
Sex tölvum auk sjávarpa var stolið úr Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Þrjár tölvanna auk skjávarpans fundust í fórum mannsins. Mynd af heimasíðu FS
35 ára gamall karlmaður, Ívar Smári Guðmundsson, hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hylmingu, fíkniefnalagabrot og líkamsárás. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Þrjár fartölvur auk skjávarpa fundust í bifreið Ívars um hádegisbil mánudaginn 25. febrúar árið 2013. Um var að ræða þýfi úr innbroti í Fjölbrautarskóla Suðurnesja nóttina á undan. Bar Ívar því við að hann hefði keypt tækin fyrr um morguninn eftir auglýsingu á Bland.is. Hann mundi þó ekki símanúmerið sem hann hringdi í.

Þá hlaut hann einnig dóm fyrir að kasta 40 cm löngum járnbút úr ökumannssæti eigin bíls í gegnum rúðu á öðrum bíl. Búturinn hafnaði í öxl og hálsi annars manns. Járnbúturinn vó 2 kg og hlaut maðurinn mar á öxl, upphandlegg og hálsi.

Áður hlotið þriggja ára dóm

Þá var Ívar í tvígang gripinn með fíkniefni á þáverandi heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd. Í fyrra skiptið var um að ræða 8,1 g af amfetamíni og 0,05 g af MDMA. Í því síðara voru í vörslu hans 0,61 g af amfetamíni, 0,20 g af maríhúana og 0,78 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Maðurinn játaði við þingfestingu fíkniefnabrot sín og við aðalmeðferð játaði hann líkamsárásinni. Hann var einnig fundinn sekur fyrir vörslu þýfisins. Hann hefur margoft verið dæmdur fyrir brot á fíkniefnalögum og hlaut þriggja ára dóm fyrir líkamsárás auk fjölda annarra brot árið 2007.

Var refsing hans ákveðin fjögurra mánaða fangelsi. Dómurinn er óskilorðsbundinn. Dóminn í heild sinni má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×