Fótbolti

Sex eftirminnilegustu landsleikir Margrétar Láru

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Margrét Lára hefur skorað 72 mörk í landsleikjunum 100.
Margrét Lára hefur skorað 72 mörk í landsleikjunum 100. vísir/eol
Í tilefni þess að Margrét Lára Viðarsdóttir lék sinn 100. landsleik fyrir Íslands hönd á þriðjudaginn fékk Fréttablaðið markadrottninguna frá Vestmanna Eyjum til að velja sex eftirminnilegustu landsleikina á ferlinum.

Fyrsti leikurinn

14.06.2003

Ísland - Ungverjaland 4-1

Margrét Lára kemur inn af bekknum og skorar

Maður gleymir aldrei fyrsta landsleiknum. Ég kom inn á og skoraði með fyrstu snertingu og það með skalla sem ég er ekki vön að gera. Ég fylgdi eftir sláarskoti ef ég man rétt. Svona týpískt fyrsta mark. Þarna var ég bara 16 ára að spila með ÍBV og í fyrsta skipti í landsliðshópnum.

Margrét fagnar sigurmarkinu gegn Frökkum.vísir/daníel
Snjóboltinn byrjar að rúlla

16.06.2007

Ísland - Frakkland 1-0

Margrét Lára skorar sigurmarkið

Þessi sigur gaf okkur trú að við gætum farið á EM. Ég skoraði mark með skalla, eitt ljótasta mark sem ég hef skorað, en líka eitt það mikilvægasta. Þarna fór snjóboltinn að rúlla hjá okkur. Mér finnst þetta vera ákveðinn vendipunktur hjá landsliðinu. Þessi sigur gaf okkur mikið og þjóðin fór að fylgjast með. Allir áttuðu sig á að þarna var lið sem gæti farið í lokakeppni. Þetta breytti hugarfarinu hjá okkur öllum.

Ísland tryggði sér sæti á EM í fyrsta sinn með sigri á Írlandi á svellhálum Laugardalsvelli.vísir/stefán
Fyrsta sinn á EM

30.10.2008

Ísland - Írland 3-0

Margrét Lára skorar annað markið

Þessi leikur er mér auðvitað fastur í minni þar sem við komumst þarna í fyrsta sinn á EM. Það var geggjuð stemning í stúkunni – algjörlega ógleymanleg stund. Völlurinn var auðvitað eftirminnilegur. Hann var eins og skautasvell. Hann væri aldrei samþykktur í dag eins og hann var þá því kröfurnar eru meiri núna. Leikurinn færi ekki fram á svona hálum velli í dag. Þetta var svolítið furðulegt en stemningin mikil og gleðin.

Margrét Lára kemur Ísland yfir gegn Úkraínu 2012.vísir/stefán
Aftur á EM

25.10.2012

Ísland - Úkraína 3-2

Margrét Lára skorar fyrsta markið

Þótt við værum að komast á EM í annað sinn var þessi leikur virkilega skemmtilegur og eftirminnilegur. Úkraína, eins og Írland, var alveg í séns eftir úrslitin í fyrri leiknum sem við unnum, 3-2. Þarna var áhorfendametið (6.647) sett og Jói vallarstjóri þurfti að opna hina stúkuna.

Leikurinn gegn Hollandi er einn sá stærsti í sögu kvennalandsliðsins.vísir/epa
Í átta liða liða úrslit á EM

17.07.2013

Holland - Ísland 0-1

Jöfnunarmark Margrétar Láru gegn Noregi í fyrsta leik kom Íslandi í stöðu að með sigri gegn Hollandi kæmist liðið upp úr riðli

Þetta var geggjaður leikur enda ekkert smá afrek fyrir íslenskt landslið í hópíþrótt að komast í átta liða úrslit á stórmóti. Dagný Brynjars skoraði með skalla eftir sendingu frá Hallberu. Þetta var bara teiknað á æfingu og farið með inn í leikinn. Að launum fengum við leik gegn heimastelpum frá Svíþjóð sem var stórkostleg stund nema hvað við vorum lélegar. Það var æðislegt að spila á móti þeim fyrir fullu húsi en leikurinn var búinn eftir sjö mínútur.

Margrét Lára var heiðruð eftir 100. landsleikinn.vísir/vilhelm
Hundrað leikja klúbburinn

22.09.2015

Ísland - Hvíta-Rússland 2-0

Margrét Lára er fyrirliði í 100. landsleiknum

Athyglin var full mikil á mér fyrir minn smekk. Ég var bara hálf feimin og hálf klökk. Það var samt gaman að sjá hvað margir voru tilbúnir að koma þrátt fyrir skítabrælu. Það var stór stund að spila minn 100. landsleik og fá svona mætingu. Ég er fólkinu sem mætti virkilega þakklát fyrir þetta og öllum í kringum liðið.


Tengdar fréttir

Aldrei viljað gefast upp

Margrét Lára Viðarsdóttir spilaði 100. landsleikinn á þriðjudaginn. Meiðsli voru nálægt því að fá hana til að hætta í fótbolta en þess í stað er hún komin aftur á fulla ferð og orðin fyrirliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×