Körfubolti

Hef ennþá hraðann, sem betur fer

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi var óhræddur að ráðast á serbnesku vörnina í gær.
Logi var óhræddur að ráðast á serbnesku vörnina í gær. vísir/valli
Logi Gunnarsson lék í gær sinn 49. Evrópuleik fyrir íslenska körfuboltalandsliðið og mun spila fimmtugasta leikinn fyrstur allra á móti Spánverjum í dag. Logi bætti met Herberts Arnarsonar í gær og hélt upp á tímamótin með mjög flottum leik.

Það gekk ekki eins vel hjá liðinu sem fékk sinn fyrsta skell á Evrópumótinu. Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum með samtals 13 stigum tapaði liðið með 29 stigum á móti Serbum í Berlín í gær.

„Ég var rosalega hreykinn af okkur í fyrri hálfleik, hvað við spiluðum góða vörn á þá. Það var bara tíu stiga munur og við vorum ekki að hitta vel. Þjálfarinn okkar sagði við okkur í hálfleik að þeir hafi verið heppnir að vera yfir í leiknum,“ segir Logi. Íslenska liðið hitti aðeins úr 32 prósentum skota sinna en var samt bara 10 stigum undir, 42-32.

„Við fengum þá til að tapa fimmtán boltum í fyrri hálfleiknum sem er frábært. Það eru ekki margir sem gera það við Serbana. Seinni hálfleikurinn var bara of erfiður. Ef þú átt ekki toppleik á móti þeim þá áttu ekki möguleika því þeir koma bara með jafn góða leikmenn inn af bekknum,“ segir Logi um seinni hálfleikinn sem tapaðist 51-32.

„Ég var ánægður með það hvernig við börðumst þó að við höfum tapað með miklum mun. Ég er stoltur af okkur og við förum í næsta leik alveg eins of við fórum í fyrri hálfleikinn á móti Serbunum. Kannski náum við tveimur góðum svoleiðis hálfleikjum og þá veit maður ekki hvað gerist, sérstaklega ef við hittum vel,“ segir Logi.

Íslenska liðið á eftir tvo leiki í mótinu, á móti Spáni í kvöld og svo á móti Tyrklandi á fimmtudaginn.

„Það er nóg eftir og við ætlum að njóta þess að vera hérna. Við ætlum ekki bara að vera með því við ætlum að fara í þessa leiki til að vinna þá. Við förum bara kokhraustir á móti Spánverjunum á morgun (í dag),“ sagði Logi.

Logi setti niður fjóra þrista í sjö tilraunum.vísir/valli
Margir eldri leikmenn íslenska liðsins voru þreytulegir í gær en Logi var léttur á fæti þrátt fyrir að vera elsti maður liðsins. „Þetta er rosalega erfitt og mikið álag en þá þarf maður bara að hugsa vel um líkama sinn og borða vel. Fara í sjúkraþjálfun og teygja,“ segir Logi en lykilmenn eins og Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson eru líka komnir vel inn á fertugsaldurinn.

„Við þurfum að passa þetta allt saman því það er mikið álag á okkur. Við erum ekki 25 ára lengur en við kannski lítum ágætlega út,“ segir Logi í léttum tón.

Logi var áræðinn í gær og hitti einnig vel úr þriggja stiga skotunum. „Ég ákvað að fara inn í leikinn eins og ég gerði í fyrstu tveimur leikjunum sem var að vaða á hringinn og nota hraðann sem ég hef ennþá. Þó að ég sé orðinn 34 ára þá hef ég ennþá hraðann, sem betur fer. Ég ætla að njóta þess á meðan ég hef hann ennþá. Maður veit víst aldrei hvenær fer að hægjast á manni,“ segir hann.

Logi náði metinu hans Herberts í gær og komst líka fram úr Teiti Örlygssyni. Hann fer síðan fram úr Jóni Sigurðssyni á fimmtudaginn og verður þá orðinn sjötti leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. „Það er ekki amalegt að fara fram úr þeim,“ segir Logi að lokum.

Flestir leikir fyrir Ísland í Evrópukeppni:

Logi Gunnarsson    49

Herbert Arnarson    48

Friðrik Stefánsson    47

Guðmundur Bragason    45

Jón Arnór Stefánsson    43

Falur Harðarson    41

Teitur Örlygsson    37

Helgi Már Magnússon    36

Hlynur Bæringsson    35

Jakob Örn Sigurðarson    32

Páll Axel Vilbergsson    32

Guðjón Skúlason    32


Tengdar fréttir

Við erum ekkert saddir

Hvíldardagurinn fór illa með hnéð á Jóni Arnóri Stefánssyni.

Eyðimerkurgangan á enda | Fyrstu körfurnar hjá Pavel

Pavel Ermolinskij komst loksins á blað á móti Serbíu í þriðja leik liðsins í gær en hann skoraði ekki körfu í fyrstu tveimur leikjunum á Evrópumótinu í Berlín sem voru á móti Þýskalandi og Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×