Körfubolti

Jakob: Þurfum bara að gíra okkur upp fyrir Spánverjana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob í leiknum gegn Serbíu í gær.
Jakob í leiknum gegn Serbíu í gær. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu töpuðu með 29 stigum á móti Serbíu í þriðja leik sínum á Evrópumótinu í Berlín í gær en það er stutt stórra högga á milli því liðið mætir Spánverjum í kvöld.

„Þetta er eitt af topp þremur liðunum í mótinu og þetta var erfitt í seinni hálfleik. Mér fannst við vera mjög flottir í fyrri hálfleik," sagði Jakob eftir leikinn við Serbíu í gær.

Íslenska liðið var tíu stigum undir eftir ágætan fyrri hálfleik en Serbarnir keyrðu yfir íslenska liðið í lokaleikhlutanum.

„Þetta hefði jafnvel átt að vera jafn leikur í hálfleik af því að mér fannst við fá svo galopin skot sem við hittum ekki alveg nógu vel úr," sagði Jakob.

„Fyrri hálfleikurinn var mjög flottur varnarlega og það var þvílík barátta í liðinu. Sóknin var líka mjög góð hvað það varðar að boltinn fór hratt á milli manna og það var gott flæði," sagði Jakob.

Jakob skoraði sex stig í leiknum og var einnig með sex fráköst. Hann var mjög áræðinn í sókninni en skotin fyrir utan þriggja stiga línuna duttu ekki hjá honum.

„Mér fannst við aðallega missa þetta í fjórða leikhlutanum. Þetta var í kringum 15 til 20 stig fram í fjórða og svo fór þetta upp í 30 stigin," sagði Jakob.

Íslenska liðið á enn eftir tvo leiki á mótinu og sá fyrri er á móti Spánverjum í kvöld.

„Við vissum að þetta yrði erfitt og mér fannst við gefa allt í þetta. Við getum verið sáttir við það. Núna þurfum við bara að gíra okkur upp fyrir Spánverjana á morgun," sagði Jakob sem segir íslensku strákana vera tilbúna í að mæta öðru mjög sterku liði.

„Það er annað próf fyrir okkur á móti öðru stórliði með fullt af hrikalega góðum leikmönnum. Það verður gaman að prófa sig á móti þeim," sagði Jakob.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×