Sport

„Ólympíulágmarkið gæti komið í næsta hlaupi“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aníta á harðaspretti í Kína í nótt.
Aníta á harðaspretti í Kína í nótt. Vísir/AFP
Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu Hinriksdóttur, var að vonum ánægður með frammistöðu hennar í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á HM í Kína í nótt. Aníta hafnaði í 20. sæti af 45 keppendum og í fimmta sæti af sjö í afar sterkum riðli.

Aníta kom í mark á tímanum 2:01.01 mínútum sem er einu sekúndubroti frá Ólympíulágmarkinu sem er 2:01:00. Ólympíuleikarnir fara sem kunnugt er fram í Ríó í Brasilíu næsta sumar.

Mjög góður árangur hjá Anítu í morgun hér í Beijing og vantaði herslumuninn á að hann væri frábær,“ segir Gunnar Páll á Facebook. „Sigraði margar sem eiga betri tíma en hún og var mjög nálægt því að komast í undanúrslit.“

Hlaupið var það besta hjá Anítu á árinu en hún átti áður best 2:01.15 mínútur á móti í Belgíu snemma í ágúst. 

Gunnar Páll Jóakimsson fagnar hér Anítu Hinriksdóttur á innanhússmóti hér heima.Vísir/Valli
Eins nálægt lágmarki og mögulegt var

„Þar fyrir utan var hún eins nálægt Ólympíulágmarki og hægt er, lágmarkið 2:01:00 og hún hljóp á 2:01:01 mín. Ekki það að hún á efir að hakka þetta lágmark en það hefði verið ljúft að vera bara komin með það - gæti komið í næsta hlaupi,“ segir Gunnar Páll.

Hlaupa þurfti á 2:00.70 mínútum til að komast í undanúrslit. Aníta var aftarlega þangað til síðustu tvö hundruð metrana þegar hún átti góðan endasprett. Hún átti næstbesta tíma þeirra sem komust ekki í undanúrslit.

Sex konur komust áfram þrátt fyrir að hlaupa hægar en Aníta en þær tryggðu sér sitt sæti með því að ná einu af þremur efstu sætunum í sínum riðli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×