Innlent

Fáliðun Pírata skýri slæma mætingu

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Jón Þór Ólafsson þarf að sitja þrjá fundi á sama tíma og Birgitta Jónsdóttir tvo.
Jón Þór Ólafsson þarf að sitja þrjá fundi á sama tíma og Birgitta Jónsdóttir tvo. vísir/vilhelm
Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati er eini þingmaður flokksins sem getur mætt á fundi fastanefndar Alþingis án nokkurra árekstra. Jón Þór Ólafsson þarf að vera á þremur fundum á sama tíma og Birgitta Jónsdóttir á tveimur. Þingmennirnir þrír skipta á milli sín setu í átta fastanefndum auk forsætisnefndar, Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins, þingskapanefndar og fleiri nefnda.

Þetta kemur fram á vef Pírata í ljósi fréttar Morgunblaðsins í dag þess efnis að Píratar hefðu versta mætingu í sex af átta fastanefndum Alþingis. Fréttin hefur verið töluvert gagnrýnd, þar á meðal af Katrínu Júlíusdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar.

Píratar eru með þrjá þingmenn að reyna að dekka allar nefndir. Þau þurfa því að taka ákvörðun útfrá málum hvenær þau mæ...

Posted by Katrín Júlíusdóttir on 20. maí 2015
Þá segir á vefnum að allur gangur sé á því í hvaða fastanefnd þingmennirnir sitji hverju sinni. Jón Þór þurfi á mánudags- og miðvikudagsmorgnum að velja á milli þess að vera á fundum efnahags- og viðskiptanefndar, fjárlaganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar. Birgitta þurfi á þriðjudögum og fimmtudögum að vera á fundum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og utanríkismálanefndar á sama tíma.

Þingmennirnir fari vandlega yfir allar dagskrár nefndarfunda og forgangsraði tíma sínum og hvaða fundi skuli mætt á eftir því hvað sé á dagskrá hverju sinni. Þingmennirnir reyni ávallt að vera þar sem dagskrárliðir sem hafi snertiflöt við grunnstefnu Pírata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×