Viðskipti innlent

Icelandair hefur áætlunarflug til Chicago

Samúel Karl Ólason skrifar
Chicago er þriðja stærsta borg Bandaríkjanna.
Chicago er þriðja stærsta borg Bandaríkjanna. Mynd/icelandair
Icelandair mun hefja áætlunarflug til O‘Hare flugvallar í Chicago í Bandaríkjunum í mars á næsta ári. Fyrst um sinn verður flogið fjórum sinnum í viku en flogið verður allan ársins hring. Sala er þegar hafin samkvæmt tilkynningu frá Icelandair og er þetta fimmti áfangastaður fyrirtækisins í Norður-Ameríku.

Icelandair flaug til Chicago á árunum 1973 til 1988.

„Chicago hefur verið til skoðunar hjá okkur um hríð. Með stækkun leiðakerfisins, fjölgun áfangastaða og aukinni tíðni, teljum við hafa skapast tækifæri fyrir okkur til að fara inn á þennan stóra markað sem Chicago er,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

„Chicagosvæðið er rúmlega tíu milljón manna markaður og með beinu flugi stefnum við að því að margfalda ferðamannafjöldann frá svæðinu til Íslands og bjóða auk þess upp á frábæra tengimöguleika til áfangastaða okkar í Evrópu. Að auki er Chicago sögufræg og spennandi borg fyrir Evrópubúa og okkur Íslendinga að heimsækja.“

Meðfylgjandi er kort sem sýnir leiðakerfi Icelandair þar sem Chicago hefur verið bætt við.Mynd/Icelandair
Rahm Emanuel, borgarstjóri Chicago, segir í tilkynningu frá O‘Hare flugvellinum að hann fagni þeim tækifærum og viðskiptum sem hinn nýi áfangastaður muni færa íbúum borgarinnar. Chicago er þriðja stærsta borg Bandaríkjanna á eftir Los Angeles og New York.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að Icelandair eigi einnig í viðræðum við ferðamálayfirvöld í Montreal og alþjóðaflugvöllinn þar, varðandi mögulegt beint flug. Von er á niðurstöðu úr þeim samskiptum á næstu vikum.

Icelandair flýgur á þessu ári til 39 áfangastaða, 14 í Norður-Ameríku og 25 í Evrópu. Tveir nýir áfangastaðir bætast við á árinu, Birmingham í Bretlandi, sem byrjað var að fljúga til í febrúar, og Portland í Oregon í Bandaríkjunum, en fyrsta flugið þangað verður í næstu viku, þriðjudaginn 19. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×