Sport

Losar sig við alla góðu, svörtu leikmennina

LeSean McCoy.
LeSean McCoy. vísir/getty
Hlauparinn LeSean McCoy sakar fyrrum þjálfara sinn hjá Philadelphia Eagles um rasisma.

McCoy, sem er einn besti hlaupari NFL-deildarinnar, var frekar óvænt sendur frá félaginu á dögunum og samdi hann í kjölfarið við Buffalo Bills.

Hann segir að þjálfarinn, Chip Kelly, sé viljandi að losa sig við svartar, stjörnur liðsins.

„Þið sjáið allir hvað hann var fljótur að losa við góðu leikmennina. Sérstaklega svörtu leikmennina. Hann var ekki lengi að losa sig við þá," sagði McCoy um þjálfarann.

„Þetta er sannleikurinn og það er ástæðu fyrir þessu hjá honum. Hann lék DeSean Jackson fara í fyrra. Í alvörunni? DeSean Jackson? Hver gerir það?"

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×