Sport

HK Íslandsmeistari í blaki | Myndasyrpa

HK-ingar fagna í kvöld.
HK-ingar fagna í kvöld. vísir/valli
HK varð í kvöld Íslandsmeistari í blaki eftir æsispennandi leik gegn Stjörnunni.

HK hafði þó betur að lokum, 3-1, og vann því einvígið 3-0. Miklir yfirburðir hjá HK þó svo Stjarnan hafi látið hafa fyrir sér í kvöld.

Kópavogsliðið vann fyrstu hrinuna í kvöld en Stjarnan jafnaði. HK kom til baka, vann næstu tvær hrinur og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

HK varð einnig deildarmeistari og hefur leikið afar vel í vetur.

Hér að ofan má sjá myndir sem Valgarður Gíslason tók í Fagralundi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×