Bestu lið Frakklands í stríð við franska sjónvarpsstöð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2015 08:00 Bann Zlatan Ibrahimovic fór illa í forráðamenn Paris Saint-Germain. Vísir/Getty
Paris Saint-Germain og Marseille, tvö af bestu liðunum í frönsku fótboltadeildinni, ætla að sniðganga frönsku sjónvarpsstöðina Canal Plus það sem eftir er tímabilsins. Ástæðan er að Canal Plus sýndi upptökur frá samskiptum leikmanna og dómara eftir leik sem leiddi til þess að leikmennirnir Zlatan Ibrahimovic og Dimitri Payet voru báðir dæmdir í leikbann. Leikmennirnir héldu skammarræðu yfir dómaranum eftir leik og Canal Plus tók það allt upp og sýndi svo í umfjöllun sinni um frönsku deildina. Þessar upptökur voru síðan notaðar þegar aganefnd franska sambandsins tók málið fyrir. Zlatan Ibrahimovic fékk fjögurra leikja bann en lét ekki bara dómaratríóið heyra það því ummæli hans um frönsku þjóðina vöktu einnig sterk viðbrögð í Frakklandi. Sjá: Zlatan sagði Frakkland vera skítaland og fékk fjögurra leikja bann Canal Plus borgar yfir 60 milljarða á ári fyrir sjónvarpsréttinn í frönsku deildinni en í samningnum við franska knattspyrnusambandið eru ákvæði um að sjónvarpsstöðin eigi að reyna að gefa sem jákvæðasta mynd af franska fótboltanum og að hún megi ekki leggja áherslu á atvik sem gefa neikvæða mynd af deildinni. Félögin segja í yfirlýsingu að þau vilja ekki taka áhættuna á því að eiga á hættu að fá nýjar kærur á sig vegna óheppilega ummæla leikmanna eftir umdeildar ákvarðanir dómara. Canal Plus sé með margar sjónvarpsvélar og hljóðnema á leikjum sínum og þetta sé því varúðarráðstöfun. Hér fyrir neðan má sjá frétt á Stöð tvö um málið á sínum tíma.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Kópavogsslagur í Bestu deildinni Sport Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti Fleiri fréttir Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Sjá meira