Glamour

Blaðið tileinkað áhrifamiklum konum

Sarah Jessica Parker, Michelle Obama og Kerry Washington taka sig vel út á forsíðunni.
Sarah Jessica Parker, Michelle Obama og Kerry Washington taka sig vel út á forsíðunni.
Forsíðu nýjasta tölublað bandaríska Glamour prýða engar aðrar en forsetafrúin Michelle Obama og leikkonurnar Sarah Jessica Parker og Kerry Washington

Blaðið, sem er maí-blað, er tileinkað áhrifamiklum konum. Konurnar eiga það sameiginlegt að berjast fyrir réttindum hermanna og fjölskyldum þeirra. Þetta er í annað sinn sem forsetafrúin prýðir forsíðuna bandarísku útgáfunnar af Glamour. 

Myndatakan fór fram í bláa herberginu í Hvíta húsinu en það var sjálfur Patrick Demarchelier sem myndaði. 

Obama og Washington klæðast báðar kjólum frá Narciso Rodriquez á meðan Parker er í kjól frá Oscar de la Renta. 

Hér að neðan má sjá bak við tjöldin-myndband frá Glamour þar sem ritstjórinn Cindi Leive gerir grín að Söruh Jessicu Parker fyrir að vera ennþá með Blackberry síma. 






×