Glamour

Kristen Wiig er algjört kamelljón

Ritstjórn skrifar
Heba Þórisdóttir fer yfir hvernig hún málaði leikkonuna Kristen Wiig fyrir Golden Globe.
Heba Þórisdóttir fer yfir hvernig hún málaði leikkonuna Kristen Wiig fyrir Golden Globe.
Eftir Golden Globe verðlaunahátíðina er gaman að skyggnast bak við tjöldin þar sem oft mikið gengur á en það veit förðunarmeistarinn Heba Þórisdóttir best.

Að þessu sinni sá hún um förðun leikkonunnar Kristen Wiig og deilir hér með með lesendum hvað þarf til að ná fram ferskri förðun Wiig og hvernig ferlið er hjá stjörnunum áður en þær stíga út á rauða dregilinn.

„Mér finnst húðin mikilvægust. Ég byrjaði á að TGF Booster serum frá Le Mieux yfir allt andlitið og skelli svo á augnmaska frá sama merki sem ég læt sitja á á meðan ég raða vörum og við ræðum um förðunina og hvaða kjól hún ætlaði að klæðast. Hún hafði talað um Twiggy/Biba augu nema að eyelinerinn átti að vísa upp í stað niður svo við fórum meira í átt að 50´s með línuna en héldum vörunum ljósum, þannig að þetta var hennar eigið lúkk," segir Heba en henni finnst mikilvægast að manneskjan sem hún er með í stólnum hverju sinni sé ánægð með sig þegar hún fer af stað.

Aðspurð hvort það sé ekki pressa þegar fjölmiðlar eru velja best og verst klæddu stjörnurnar viðurkennir Heba að það er hrikalega leiðinlegt þegar miðlarnir ná ekki lúkkinu. „Núna hafa miðlarnir mikið vald yfir því hver er í hvaða kjól og hvaða tískuhús klæðir hvern, þetta er endar allt sem auglýsing. Síðan það byrjaði þá klæðir fólk sig meira fyrir aðra en þau mundu gera annars.“

Það er hægt að sjá að Twiggy var fyrirmyndin að þessu útliti hjá Wiig á Golden Globe.
En aftur að förðuninni þar sem Heba leggur mikið upp úr fallegri húð.

„Eftir maskann setti ég setti Botanica olíu sem ég nudda vel inn í húðina. Síðan set ég Sensai Brightening Cream á áður en set farðann á en ég nota Hourglass Veil farða sem ég setti á með Artis bursta, sem gefur rosalega fallega áferð.

Augun: „Ég notaði fyrst ljósan augnskugga yfir allt augnlokið og setti svo brúnan lit í skyggingu. Svo gerði ég eyelinerinn með Hourglass liquid liner. Svo setti ég ljósan glansandi augnskugga yfir allt augnlokið og undir augabrúnirnar. Allir augnskuggarnir sem ég notaði koma frá Nars. Að lokum setti ég fullt af maskara á og gerviaugnahár frá I´m so picky til að fá meiri fyllingu og meira 60´s útlit. Að lokum setti ég hyljara og kinnalit í ljósbleiku, bæði frá Nars og ljóst shimmer frá Hourglass til að gefa fallegan ljóma í lokinn,“ segir Heba en það eina sem Kristen hafði gefið henni fyrir fram um það sem hana langaði var fjólublár varalitur en þær fundu ekki lit sem passaðu svo Heba endaði með að blanda rétta litinn á varirnar.

 
Sometimes they just don't make the color you need #goldenglobes2017

A photo posted by Heba Thorisdottir (@hebathormakeup) on Jan 8, 2017 at 5:00pm PST

 
#GoldenGlobes2017 #kristenwiig

A photo posted by Kristen Wiig (@kristenwiigdaily) on Jan 8, 2017 at 5:13pm PST

Heba hefur starfað með stjörnunum vestanhafs í tugi ára, bæði í kvikmyndum eins og Inglorious Bastards, Django Unchained, Bridesmaid og núna síðast Spiderman-Homecoming. Til dæmis sá hún alfarið um förðun Kristen Wiig í kvikmyndinni Ghostbusters á hvíta tjaldinu. Það hefur hún einnig gert fyrir leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Scarlett Johansson svo eitthvað sé nefnt. Sömuleiðis hefur hún séð um þessar leikkonur og aðrar fyrir rauða dregilinn.

„Ég fæ vanalega í kringum klukkutíma fyrir förðunina. Stundum eru það tveir tímar en þá er hár líka og við hárgreiðslumanneskjan að dansa saman, eins og hægt er að kalla það. Svo er þá hár, förðun og líkamsförðun, ef það þarf áður en viðkomandi klæðir sig. Þegar er allt er klárt með kjól, skó og skartgripi þá set ég varalitinn á og ef eitthvað er að þá laga ég það, oft á meðan það er verið að sauma þær í kjólana. Það er svo misjafnt hvort maður fylgi þeim alla leið á dregilinn en núna var ég bara heima í rólegheitum.“

Heba segir að lokum að það sé mikilvægt að það sé jafnvægi á milli hárgreiðslunnar, förðunarinnar og kjólsins. „Svo getur maður verið miklu meira í tísku í París en í Los Angeles þar sem meiri áhersla á útlit. Jafnvel í New York getur maður verið ýktari í Los Angeles en Kristen bjó í New York í mörg ár þannig að það er hægt að leyfa sér meira og er spennandi að vinna með henni. Þar fyrir utan er hún algjört kamelljón sem er alltaf að breyta um hárgreiðslu og maður getur því alltaf verið að breyta til förðunarlega séð líka.


Tengdar fréttir






×