Tónlist

Nýtt lag og myndband Aldrei fór ég suður hátíðarinnar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá Aldrei fór ég suður í fyrra
Frá Aldrei fór ég suður í fyrra vísir/ágúst atlason
Tónlistarveislan Aldrei fór ég suður fer fram á Ísafirði um páskana. Af því tilefni hafa aðstandendur hátíðarinnar gefið út lag fyrir hátíðina. Lagið heitir Þú gerir ekki rassgat einn en það er frasi sem faðir hátíðarinnar, Mugison, hefur notað óspart í gegnum tíðina. 

Lagið er sungið af Helga Björnssyni en lag og texti er eftir Baggalútinn Braga Valdimar Skúlason. Hann og Kiddi úr Hjálmum sáu um upptökustjórn og hljóðblöndun. Ómar Guðjónsson, Helgi Svavar Helgason, Eyþór Gunnarsson, Tómas Jónsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson sjá um hljóðfæraleik. Pétur Örn Guðmundsson sér um bakraddir.

Meðal hljómsveita sem leika á hátíðinni eru Emmsjé Gauti, Pink Street Boys, Mugison, Prins Póló, AmabAdamA og Júníus Meyvant. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×