Innlent

Banaslys á Suðurlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Rannsókn málsins er á frumstigi.
Rannsókn málsins er á frumstigi.
Banaslys varð á Suðurlandsvegi, vestan við Kirkjubæjarklaustur, á tíunda tímanum í morgun.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að tveir erlendir ferðamenn voru í bílnum og svo virðist sem að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í slæmri færð með þeim afleiðingum að bíllinn valt út fyrir veg.

Annar aðilanna sem voru í bílnum var úrskurðaður látinn á vettvangi en hinn er lítils háttar slasaður.

Lögregla er að vinna á vettvangi og er rannsókn málsins á frumstigi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×