Handbolti

Rúnar: Ætla ekki að taka Markussen á þetta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar á ferðinni með landsliðinu á EM í fyrra.
Rúnar á ferðinni með landsliðinu á EM í fyrra. vísir/daníel
Rúnar Kárason þurfti að bíta í það súra epli að missa af farseðlinum til Katar.

Skyttan örvhenta var einn þriggja sem lenti í niðurskurði þjálfarans um helgina og kom það mörgum á óvart að hann skildi ekki fara með út. Aðrir sem duttu út voru Tandri Már Konráðsson og Guðmundur Árni Ólafsson.

„Ég ætla nú ekki að taka Markussen á þetta," segir Rúnar er Vísir spurði hann um viðbrögð. Vitnaði hann þar í Danann Nikolaj Markussen sem komst ekki í hópinn og brást afar illa við tíðindunum.

„Auðvitað er ég svekktur. Annað væri skrítið. Ég er ekki sammála ákvörðun þjálfarans. Ef ég væri það þá væri eitthvað ekki rétt hjá mér. Þjálfarinn ræður og fylgir sinni sannfæringu. Ég náði augljóslega ekki að heilla hann nógu mikið.

Rúnar var nokkuð ánægður með eigin frammistöðu á æfingum og þokkalega sáttur með sitt í æfingaleikjunum. Þó svo það hafi verið svekkjandi að komast ekki út núna þá er hann ekki af baki dottinn.

„Ég er ánægður með líkamlegt stand eftir erfið meiðsli. Miðað við mín meiðsli og meiðslasögu þá er ég lengra kominn en búist var við. Ég veit að ég á fullt inni og á enn eftir að ná mínu besta eftir meiðslin. Ef ég væri kominn í mitt besta form þá trúi ég því að ég hefði komist í hópinn. Nú ætla ég að komast í mitt besta stand og taka af allan vafa um hvort ég eigi að vera í þessu liði," segir skyttan sem vill alls ekki gera lítið úr liðsvali þjálfarans.

„Það er nú ekki eins og það séu einhverjir byrjendur í minni stöðu. Hópurinn er sterkur og þéttur. Það er jákvætt að landsliðið sé það gott að maður eigi ekki gefins sæti. Ég legg aftur á móti ekki árar í bát og stefni á að koma sterkari til baka."


Tengdar fréttir

Guðmundur fer með 17 til Katar

Guðmundur Guðmundsson landsliðþjálfari Danmerkur í handbolta hefur tilkynnt að hann fari með 17 leikmenn til Katar en hann sendi Nikolaj Markussen heim eftir leikinn gegn Íslandi í gær.

HM hópurinn klár | Guðmundur Árni dettur út

Aron Kristjánsson landsliðþjálfari Íslands í handbolta tilkynnti rétt í þessu leikmannahópinn sem hann fer með á heimsmeistaramótið í Katar. Guðmundur Árni Ólafsson dettur út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×