Sport

Helga María svigaði til silfurs

Helga María á fleygiferð.
Helga María á fleygiferð. vísir/getty
Skíðakonan Helga María Vilhjálmsdóttir stóð sig vel á alþjóðlegu svigmóti í Þýskalandi í dag.

Helga María varð í öðru sæti í keppninni sem fram fór í Bad Wiesse. Hún var aðeins ellfu hundraðshlutum úr sekúndu á eftir heimastúlkunni Alice Macauley.

Helga keyrði seinni ferðina mjög vel og var þá með besta tímann en það dugði ekki í gullið. Hún tók einnig þátt í móti á sama stað í gær og varð þá í tíunda sæti.

Hún hefur verið að skíða vel í vetur og verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×