Sport

Tæklari snéri niður ræningja

Martin er mikið tröll.
Martin er mikið tröll. vísir/getty
Jonathan Martin er tæklari í NFL-deildinni og lætur sig ekki muna um að tækla menn utan vallar líka.

Martin varð vitni að ráni í verslunarmiðstöð í Los Angeles í dag. Hann brást hratt við og tæklaði annan ræningjann í gólfið.

Tæklarinn segist hafa lamið hann um fimm til átta sinnum þar til ræninginn gafst upp. Þetta var þrekinn maður sem öryggisvörðurinn réð ekkert við.

„Ég hugsaði ekki neitt. Ég brást bara við og hljóp af stað. Það var ekki fyrr en seinna sem vinur minn sagði við mig að ræninginn hefði vel getað verið með byssu. Ég var ekkert að spá í því. Ég vildi bara hjálpa til," sagði Martin.

Það er ánægjuleg tilbreyting fyrir NFL-deildina að fá jákvæðar fréttir af leikmönnum deildarinnar sem virðast elta uppi vandræði í hverju horni.

Martin komst í heimsfréttirnar árið 2013 er hann sakaði liðsfélaga sinn hjá Miami Dolphins um einelti. Í kjölfarið fór hann til San Francisco 49ers þar sem hann er enn.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×