Innlent

Bæjarstjóri Fjallabyggðar lætur af störfum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Siglufirði.
Frá Siglufirði. Vísir/Pjetur
Sigurður Valur Ásbjarnarson hefur óskað eftir að láta af störfum sem bæjarstjóri Fjallabyggðar af persónulegum ástæðum. Hann hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2010 og eru starfslokin gerð í fullri sátt.

Í tilkynningu frá Fjallabyggð þakkar bæjarstjórn Sigurði fyrir vel unnin störf og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar í framtíðinni.

Yfirlýsing frá Sigurði Val Ásbjarnarsyni, bæjarstjóra:



Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Í bréfi mínu í dag til bæjarstjórnar Fjallabyggðar hef ég óskað eftir því að fá lausn frá störfum sem bæjarstjóri Fjallabyggðar. Ástæða uppsagnar minnar er fyrst og fremst af persónulegum ástæðum og eru starfslokin gerð í fullri sátt við bæjarfulltrúa.

Ég vil þakka bæjarfulltrúum Fjallabyggðar fyrir ánægjulegt samstarf um leið og ég óska þeim góðs gengis við störf sín fyrir samfélagið.

Einnig þakka ég starfsmönnum bæjarfélagsins fyrir góð kynni og gott samstarf. Margt hefur áunnist frá árinu 2010 en mörg spennandi verkefni eru framundan. Staða sveitarfélagsins er sterk og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum.

Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka íbúum Fjallabyggðar fyrir gott samstarf um leið og ég óska bæjarfélaginu alls hins besta.

Sigurður Valur Ásbjarnarson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×