Jól

Fígúrur fyrir krakkana

Starri Freyr Jónsson skrifar
Hallbjörn Sæmundsson undirbýr skreytingar á Jólahúsi barnanna í Reykjanesbæ.
Hallbjörn Sæmundsson undirbýr skreytingar á Jólahúsi barnanna í Reykjanesbæ. Víkurfréttir
Túngata 14 í Reykjanesbæ er fastur viðkomustaður margra bæjarbúa og utanbæjarmanna vikurnar fyrir jólin enda húsið með eindæmum skrautlegt og litfagurt.

Húsið er kallað Jólahús barnanna á þessu tímabili enda skreytt með þarfir yngsta aldurshópsins í huga að sögn eiganda þess og yfirskreytingarmeistara, Hallbjörns Sæmundssonar. Húsið stendur í gamla bænum í Keflavík og var byggt árið 1926. Það er rautt á lit með hvítu þaki og nokkuð jólalegt í útliti og því sérstaklega heppilegt undir skrautlegar jólaskreytingar.

„Ég byrjaði að skreyta húsið fyrir um sextán árum. Upphaflega var þetta hóflegt en skrautið varð meira með hverju árinu sem leið. Ég hef smíðað eitthvað sjálfur og keypt annað en ég legg minni áherslu á jólaljósin en þeim mun meiri á ýmsar fígúrur enda skreyti ég með þarfir barna í huga. Þau hafa miklu meira gaman af ýmsum fígúrum en fallegum jólaljósum enda koma þau mikið hingað, ekki síst í hópum frá leikskólum bæjarins.“

Það eru þó ekki bara yngsta kynslóðin sem hrífst af húsi Hallbjörns. „Hér er nánast stanslaus umferð allan sólarhringinn vikurnar fyrir jólin. Margir taka myndir og þegar bláu ljósin eru sem mest heldur maður stundum að það sé kviknað í. Hingað koma ekki bara leikskólahópar heldur bæjarbúar á öllum aldri og ekki síst eldri borgarar. 

Margar rútur frá höfuðborgarsvæðinu stoppa hér við en margir heimsækja Reykjanesbæ á þessum árstíma enda mörg falleg jólahús hér. Bærinn breytist í hálfgerða paradís á þessum árstíma. Það er líka gaman að heyra um fólk sem heimsækir húsið árlega. Ég ræddi til dæmis við ömmu í fyrra sem mætir hingað á hverju ári með barnabörnin sín úr Reykjavík.“ 

Hallbjörn skreytir Jólahúsið með þarfir barnanna í huga.Víkurfréttir
Mikil vinna felst í því að setja upp skrautið en hún hefst vanalega um miðjan nóvember. 

„Þetta er mjög tímafrekt verkefni sem krefst vandvirkni. Það þýðir ekkert að henda þessu upp hingað og þangað heldur þarf að vanda vel til verks. Ég set skrautið upp einn og vil enga hjálp við það. Sjálfur er ég orðinn löglegt gamalmenni og orðin svolítið fullorðinn fyrir þetta príl en ef ég get þetta ekki einn þá er kominn tími til að hætta þessu.“






×